Það sem af er árinu eru nýskráningar nýrra fólksbifreiða orðnar 10.129. Þær voru á sama tímabili á síðasta ári 10.615 og hafa því dregist saman um 4,6% á milli ára. Nýskráningar til almennra notkunar eru 52% og til ökutækjaleiga 49,7% en þetta kemur fram í tölum frá Bílgreinasambandinu.
Nýorkubílar með tæp 90% nýskráningar
Litlar breytingar hafa orðið eftir orkugjöfum en nýorkubílar eru með tæp 90% nýskráningar. Hreinir rafbílar eru með rúmlega 49% nýskráningar, Hybrid 21,7% og tengiltvinnbílar tæp 19%.
KIA er áfram söluhæsta bílamerkið með 1.292 nýskráningar sem er um 12,8% hlutdeild í heildarsölu. Toyota kemur í öðru sæti með 1.215 bifreiðar og Tesla í þriðja sæti með 978. Þar á eftir koma Hyundai með 671 bifreið og Dacia í fimmta sætinu með 492.







