Hvað líður breytingum á örorkumati?

Lestími: < 1 mín

Fjórtán ár eru liðin frá því að Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) sendu frá sér hvatningu um breytt vinnulag við örorkumat. SFF lagði til að miðlæg stofnun annaðist örorkumatið og þannig yrðu hagsmunatengsl rofin, traust bætt og samræmi aukið.

Síðan þá hefur ekkert gerst annað en að tveir lagaprófessorar sömdu drög að breytingum á örorkumati í skaðabótalögum og skiluðu inn til dómsmálaráðuneytisins fyrir fjórum árum. Þar hefur frumvarpið síðan legið til skoðunar.

Kostnaður tryggingafélaganna af framkvæmd örorkumats er um 3 milljarðar króna á ári. Stærstur hluti er vegna bílslysa og bera bíleigendur kostnaðinn í gegnum iðgjöld bílatryggingar.

Í Morgunblaðinu 8. september benda þrír lögmenn á nauðsyn þess að ráðist verði í úrbætur á örorkumati. Þeir benda á að með núverandi fyrirkomulagi stjórni vátryggingarfélögin að miklu leyti hvernig sönnur eru færðar á líkamstjón. Það segja þeir  ekki samræmast sönnunarbyrði tjónþola í líkamstjónamálum. Þeir segja ljóst að tryggingarfélög, sem eru greiðandi bóta í flestum mála, vilji stjórna ferðinni með vali á matsmönnum og oft og tíðum meti sömu aðilar þessi mál fyrir félögin og hafi þar með gríðarlegra fjárhagslegra hagsmuna að gæta svo áframhald geti orðið á matsstörfum.

Lögmennirnir þrír segja að breyta þurfi starfsgrundvelli örorkunefndar með setningu nýrra laga og reglugerða. Til nefndarinnar þurfi tjónþolar að geta leitað beint og án útlagðs kostnaðar til að fá mat á örorku. Auka þurfi afkastagetu nefndarinnar. En eins og staðan er í dag sé eingöngu hægt að leita til örorkunefndar í skaðabótamálum (vegna umferðarslysa eða skaðabótaskyldra slysa) með samþykki tryggingarfélags. Lögmennirnir segja að tryggingarfélögin samþykki ekki þá leið og vilji lítið sem ekkert nýta þjónustu örorkunefndar.

FÍB hefur margsinnis óskað eftir upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu um hvað líði vinnu við breytingar á skaðabótalögunum en engin svör fengið.

Deila grein: