Tryggingafélögin hafa lengi bent á nauðsyn þess að breyta skaðabótalögunum til að greiðslur endurspegli raunverulegt tjón (miska) þegar um minni áverka er að ræða í bílslysum. Um 80% af heildarbótum vegna bílslysa eru vegna örorkumats á bilinu 1-15%.
Nú er framkvæmdin sú að bætur eru greiddar í samræmi við læknisfræðilega metna örorku, óháð því hvort viðkomandi hafi orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna skertrar getu til að afla sér tekna.
Hvað segja tryggingafélögin?
Í svari TM við fyrirspurn FÍB um þetta álitamál sagði m.a. að margir milljarðar væru ár hvert greiddir vegna varanlegs fjártjóns sem hefði verið metið með örorkumati, en raungerðist ekki þegar fram í sækti. Sjóvá sagði í sínu svari að hækkun miskabóta á kostnað örorkubóta myndi stuðla að því að bætur færðust í meira mæli frá þeim sem lenda í minni háttar slysum til þeirra sem raunverulega slasast mest.
VÍS sagði í svari sínu til FÍB að mat á varanlegri fjárhagslegri örorku vegna afleiðinga undir 15% væri í mörgum tilvikum umdeilanlegt og megi ætla að hafi takmörkuð áhrif á vinnugetu til framtíðar.
Vörður sagði að með breyttum áherslum yrði matsgerð einfaldari í vinnslu þar sem eingöngu þyrfti að meta læknisfræðilega þætti. Um töluverða lækkun á bótagreiðslum gæti verið að ræða. Aftur á móti þörfnuðust aðrir þættir í lögunum lagfæringar, atriði sem leiða í mörgum tilfellum til hækkunar tjónakostnaðar. Vörður sagðist vilja stuðla að því að þeir sem eru alvarlega slasaðir fái hærri bætur og sanngjarnt og eðlilegt væri að það yrði gert á kostnað þeirra sem í raun geta ekki sýnt fram á fjárhagslegt tjón. Í sama streng tóku VÍS og Sjóvá.
Ekkert tryggingafélaganna treysti sér til að varpa fram áætlun um hvaða áhrif breytingar á bótagreiðslunum hefðu á kostnað, en töldu þó ekki ólíklegt að til breytinga myndi koma. „Að öllu öðru óbreyttu mundi slík breyting á lögunum leiða til verulegrar lækkunar á iðgjöldum,“ sagði í svari Sjóvár.







