Fyrir umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar liggur tillaga um að farið verði í gagngerar úrbætur á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls, en eftir breytingar, sem fráfarandi meirihluti í borgarstjórn réðist í fyrir fáeinum mánuðum, hefur umferðaröngþveiti skapast þar á álagstíma. Afgreiðslu málsins var frestað til næsta fundar.
Tillagan lýtur að því að hafinn verði undirbúningur úrbóta á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls, þar sem m.a. er gert ráð fyrir því að lengja vinstribeygjuakrein frá Bæjarhálsi, lengja akrein sunnan gatnamótanna og þá á að breyta akreinaskipan frá Streng.
Jafnframt á að hefja undirbúning að endurgerð hægribeygjuframhjáhlaups frá Bæjarhálsi til norðurs inn á Höfðabakka, sem fjarlægt var við hinar umdeildu breytingar sem gerðar voru á gatnamótunum.
Einnig verði kannað hvort fýsilegt sé að gera undirgöng undir Höfðabakka, rétt norðan við gatnamótin, til að tengja göngu- og hjólastíga beggja vegna götunnar.
Segir í tillögunni að áður en endanleg ákvörðun um framkvæmdir verði tekin, verði lagt kostnaðarmat fyrir umhverfis- og skipulagsráð, áætlaður framkvæmdatími og möguleg tímasetning framkvæmda, auk upplýsinga um hvort og með hvaða hætti þurfi að bjóða verkið út.







