Orkuskipti í samgöngum verði að vera bæði hagkvæm og raunhæf að mati FIA alþjóðasambands bílafélaga, sem FÍB er aðili að, og neytendasamtaka. Þetta kom fram á Orkuráðstefnu World Economic Forum sem haldin var í Genf um miðjan september. Þar komu saman yfir 150 stjórnendur, sérfræðingar og stefnumótendur frá 35 ríkjum til að ræða aðgerðir til að mæta ört vaxandi orkuþörf án þess að fórna afhendingaröryggi, samkeppnishæfni eða sjálfbærni.

Vaxandi raforkuþörf
Eitt helsta umræðuefni ráðstefnunnar var sívaxandi raforkuþörf vegna gervigreindar, gagnavera og stafrænna innviða. Jafnframt var bent á að rafvæðing samgangna og iðnaðar auki enn álagið á raforkukerfin. Þátttakendur voru sammála um að stórfelld fjárfesting í raforkuframleiðslu, flutningskerfum og sveigjanleika orkukerfa væri nauðsynleg til að mæta þessari þróun.
Þessi umræða á einnig fullt erindi til Íslands. Hér á landi hefur eftirspurn eftir raforku aukist verulega á síðustu árum, meðal annars vegna uppbyggingar gagnavera, orkuskipta í samgöngum og aukinnar umræðu um orkufrekan iðnað. Á sama tíma hafa tafir á uppbyggingu orkukerfisins og flutningsmannvirkja vakið áhyggjur um hvort næg raforka verði tiltæk fyrir heimili, fyrirtæki og samgöngur til framtíðar.
FIA krefst neytendamiðaðra orkuskipta
FIA lagði á ráðstefnunni sérstaka áherslu á að orkuskipti í samgöngum mættu ekki byggjast á einni tæknilausn. Samhliða hreinum rafbílum þarf að nýta tengiltvinnbíla og sjálfbært eldsneyti til að draga úr losun. Byggja þarf upp áreiðanlega hleðsluinnviði og miðla skýrum upplýsingum til neytenda. Tryggja þarf neytendum valfrelsi um umhverfismildar tæknilausnir.
Þessi sjónarmið eiga vel við íslenskar aðstæður því þrátt fyrir hraða fjölgun rafbíla eru enn svæði þar sem hleðsluinnviðir eru takmarkaðir. Uppbygging raforkukerfisins á strjálbýlli svæðum hefur ekki náð að fullnægja aukinni eftirspurn. Fyrir neytendur skiptir ekki síður máli að orkuskiptin leiði ekki til hærri orku- eða samgöngukostnaðar.
Keflavíkurflugvöllur

Nýlegt dæmi um skort á raforkuinnviðum er við Leifsstöð. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia hefur ekki verið hægt að rafvæða farþegarútur á flughlaði, sem flytja farþega á milli flugstöðvar og flugvéla, þar sem HS Orka hefur ekki getað fullnægt þeirri afkastagetu í raforkukerfinu sem flugstöðin þarf. Farþegar eru enn látnir þola þá heilsuógn að standa og bíða í dísilútblæstri, sem oft fyllir rúturnar við Leifsstöð.
Orkuskipti verða að vera hagkvæm, raunhæf og tæknilega hlutlaus
Á ráðstefnunni var einnig fjallað um vetni, rafeldsneyti og önnur kolefnissnauð orkugjafa. Þar kom fram að stærsta hindrunin væri oft skortur á innviðum, en jafnframt væri þar eitt stærsta tækifærið til að hraða orkuskiptum. Neytendur taki fyrst og fremst mið af kostnaði og þægindum þegar þeir velja samgöngumáta eða orkugjafa, óháð þeirri tækni sem um ræðir.
Niðurstaða
Niðurstaða ráðstefnunnar var skýr: Auka þarf fjárfestingar í raforkukerfum, efla alþjóðlegt samstarf og tryggja að innviðir fyrir hreinar samgöngur haldi í við aukna eftirspurn. Að mati FIA verður árangur orkuskiptanna ekki aðeins mældur í minni losun, heldur einnig í því hvort neytendur treysti kerfinu, hafi efni á að taka þátt í breytingunum og geti valið þær lausnir sem henta þeim best. Fyrir Ísland, sem hefur sett sér metnaðarfull markmið um orkuskipti í samgöngum, er sú áskorun ekki síður mikilvæg en sjálf orkuframleiðslan.







