Framfarir og tækniþróunin hefur verið mjög hröð í bílaiðnaðinum að undanförnu. Kínverski bílaframleiðandinn BYD kynnti á dögnum nýja sjálfvirka hleðslustöð í Abu Dhabi. Þetta er verkefni sem hefur verið í þróun hjá BYD í all nokkurn tíma.
Hleðslustöðin er búinn vélrænni hendi sem sér um allt hleðsluferlið fyrir ökumenn. Hún finnur hleðslutengið í bílnum og stingur svo í samband. Það tekur í kringum fimm mínútur að hlaða bílinn frá 10% í 70%. Þetta er ný hraðhleðslutækni sem hefur verið kölluð leifturhleðsla (e. flash charging). Það fer samt eftir hraðhleðslugetu rafmagns bifreiðarinnar.Með þessari tækni tekur hleðslutíminn mun styttri tíma en þekkst hefur áður.
BYD stefnir á að opna fleiri svona hleðslustöðvar víða um heiminn fyrir lok ársins 2027. Það verður áhugavert að fylgjast með þessari þróun og hver veit nema slík hleðslustöð komi til Íslands.







