Nú þegar veturinn er genginn í garð fjölgar fyrirspurnum og kvörtunum sem berast tækniráðgjafa FÍB frá eigendum rafbíla. Oftast snúast þær um að drægnin hafi minnkað og bíllinn nái hvergi nærri þeirri drægni sem gefin var upp við kaupin. Þetta er eðlilegt að vissu marki og á sér nokkrar skýringar. Hér förum við yfir helstu ástæðurnar og hvað eigendur geta gert til að draga úr áhrifunum.
Rétt er að hafa í huga að uppgefin drægni samkvæmt WLTP-staðlinum er mæld við staðlaðar aðstæður á prófunarstofu, við um 23°C. Hún hentar vel til að bera bíla saman en segir lítið um drægnina á íslenskum vegi í frosti, roki og slabbi. Við slíkar aðstæður er algengt að drægnin minnki um 20–30%, og jafnvel meira þegar kuldinn er mestur.
1. Hitun farþegarýmisins
Hitun er einn stærsti áhrifavaldurinn. Á meðan eldsneytisbílar nýta afgangshita frá vélinni þá þarf rafbíll að taka orkuna í hitun beint af rafhlöðunni sem annars færi til að knýja bílinn áfram. Það er umtalsverð orka sem fer í að hita upp farþegarýmið og við það bætast sætishitarar og hiti í rúðum. Áhrifin eru hlutfallslega mest í stuttum ferðum þar sem bíllinn er sífellt að hita sig upp frá grunni.
Góð ráð:
- Forhitið í hleðslu – Flestir rafbílar bjóða upp á að forhita bílinn í gegnum app eða tímastillingu. Þá tekur bíllinn orku frá hleðslustöð fremur en rafhlöðunni.
- Miðstöð – Gott er að skoða stillingar í miðstöð bílsins, t.d. er mögulega hægt að láta miðstöðina einungis kynda rými í kringum ökumann eða setja orkusparandi stillingu.
- Sætis- og stýrishiti – Sætis- og stýrishitarar nýta orkuna mun betur, þar sem hitinn fer beint í ökumann og farþega fremur en að hita loftið. Þannig er t.d. hægt að lækka hitann á miðstöðinni um nokkrar gráður.
- Varmadæla – Gott er að hafa í huga við bílakaup að varmadæla getur gert gæfumuninn varðandi orkunýtni við hitun.
2. Kuldi hefur áhrif á rafhlöðuna
Rafhlöður í rafbílum eru viðkvæmar fyrir kulda. Þegar rafhlaðan kólnar hægir á efnahvörfunum inni í henni og innra viðnám eykst. Það hefur tvær meginafleiðingar:
- Takmörkuð endurheimt orku – Bíllinn getur ekki tekið jafnmikla orku inn á kalda rafhlöðu við hemlun. Því tapast orka sem annars færi aftur á rafhlöðuna, og „einnar fetils akstur“ getur virst veikari en venjulega.
- Orka fer í að hita rafhlöðuna – Rafhlöðustjórnun bílsins notar sjálf orku til að verja rafhlöðuna og halda henni við æskilegt hitastig.
Bíll sem stendur í upphituðum bílskúr eða er í hleðslu yfir nóttina fer því betur af stað á morgnana en bíll sem hefur staðið úti í frosti.
3. Vetrardekk
Vetrardekk eru úr mýkra gúmmíi, með grófara mynstri og oft þyngri en sumardekk. Það eykur viðnámið við veginn og bíllinn þarf meiri orku til að halda sama hraða. Það getur því verið gagnlegt að skoða orkumerkingu dekkjanna við kaup.

Of lágur loftþrýstingur eykur orkunotkunina. Því er gott að fylgjast vel með dekkjunum, þar sem loftþrýstingurinn lækkar þegar kólnar. Upplýsingar um loftþrýsting er hægt að finna í hurðarstaf og/eða í handbók bílsins.
Nánari upplýsingar um val á vetrardekkjum og eiginleika þeirra má finna hér.
4. Veður og færð
Aukinn vindur, rigning, snjókoma og snjór eða slabb á vegum auka viðnámið og bíllinn þarf meiri orku til að halda sama hraða. Kalt loft er auk þess þéttara en hlýtt, sem eykur enn frekar á loftmótstöðuna. Hraðinn hefur líka mikið að segja: orkunotkunin eykst hratt eftir því sem hraðar er ekið, ekki síst í mótvindi.
Snjór og klaki á bílnum sjálfum hafa líka áhrif. Snjór á þaki, vélarhlíf og annars staðar á bílnum getur aukið loftmótstöðuna umtalsvert, og þar með orkunotkunina. Þá fylgir þessu aukin þyngd sem óþarfi er að burðast með. Hreinsið því bílinn vel áður en ekið er af stað. Það er ekki aðeins sparnaður heldur líka skylda.
5. Hægari hleðsla og forhitun rafhlöðunnar
Því kaldari sem rafhlaðan er, því hægar tekur hún við hleðslu. Þetta sést helst í hraðhleðslu. Ef komið er með kalda rafhlöðu að hraðhleðslustöð getur hleðsluhraðinn orðið aðeins brot af því sem bíllinn ræður við, og hleðslan tekur þá mun lengri tíma.
Það getur skipt sköpum að notast við forhitun rafhlöðunnar sé bíllinn með þann búnað. Einn af stærstu kostunum er að bíllinn tekur mun hraðar við hleðslu, sem styttir hleðslustopp. Í mörgum bílum fer forhitunin sjálfkrafa af stað þegar hraðhleðslustöð er valin sem áfangastaður í leiðsögukerfi bílsins. Í öðrum þarf að ræsa hana handvirkt, helst 20–30 mínútum áður en komið er að stöðinni.
Kynnið ykkur í handbók bílsins hvort hann býður upp á forhitun og hvernig hún er virkjuð.
Drægnimælirinn segir ekki alla söguna
Drægnin sem birtist á mælaborðinu er áætlun sem bíllinn reiknar út frá hleðslustöðu og nýlegri orkunotkun. Þegar kólnar og orkunotkunin eykst lækkar talan strax, og margir halda þá að eitthvað sé að bílnum. Í flestum tilfellum er mælirinn einfaldlega að endurspegla aðstæðurnar, og talan hækkar aftur þegar hlýnar. Það er því ekki um bilun að ræða þótt bíllinn sýni aðeins hluta af uppgefinni drægni þegar hann er fullhlaðinn.
Fylgist með raunverulegri orkunotkun
Það er góð regla að fylgjast með raunverulegri orkunotkun bílsins. Þetta eru upplýsingar sem hægt er að nálgast í aksturstölvu bílsins. Þær birtast yfirleitt á svipaðan hátt og eyðsla eldsneytisbíls, þ.e. sem orkunotkun á hverja 100 km (kWh/100 km).
Framleiðendur gefa oft upp orkunotkun á bilinu 15–18 kWh/100 km fyrir fólksbíla. Í miklum kulda getur notkunin hins vegar hæglega farið upp í 24 kWh/100 km eða meira.
Dæmi: Bíll með 60 kWh rafhlöðu og uppgefna orkunotkun upp á 16 kWh/100 km ætti að komast um 375 km (60 ÷ 16 × 100). Ef orkunotkunin fer upp í 24 kWh/100 km í vetrarkuldanum fer drægnin niður í um 250 km (60 ÷ 24 × 100). Það er um þriðjungi minna, án þess að nokkuð sé að bílnum.
Athugið einnig að uppgefin rafhlöðustærð er ekki alltaf sú stærð sem nýtist í raun. Framleiðendur gefa stundum upp heildarstærð en nýtanleg stærð er oft nokkru minni, gjarnan um 5–10%. Upplýsingar um nýtanlega stærð rafhlöðu í flestum gerðum rafbíla má finna á vefnum ev-database.org.
Fleiri góð ráð fyrir veturinn
- Hlaðið bílinn hærra en venjulega fyrir lengri ferðir og gerið ráð fyrir minni drægni við skipulagningu.
- Notið sparnaðarstillingu (Eco) ef bíllinn býður upp á hana.
- Hafið bílinn í hleðslu þegar hann stendur, ef aðstæður leyfa.
12V rafgeymir
Slappur eða bilaður 12V rafgeymir er ein algengasta ástæða þess að rafbílar stöðvast yfir vetrartímann. Rafbílar eru, líkt og aðrir bílar, með hefðbundinn 12V rafgeymi. Þessi geymir sér um stýrikerfi, hurðalæsingar, ljós og annað sem snýr ekki beint að drifbúnaði bílsins. Þegar kólnar getur dregið úr getu hans, og verði hann óvirkur er ekki hægt að ræsa bílinn þótt drifrafhlaðan sé fullhlaðin.
Ef bíllinn sýnir viðvaranir um rafkerfið eða hagar sér undarlega við gangsetningu er rétt að láta mæla rafgeyminn áður en hann bregst alveg. Ending 12V rafgeyma er yfirleitt 3–6 ár, eftir notkun og gerð.
Hvenær er minni drægni galli?
Minni drægni í kulda er eðlileg hegðun rafbíla og telst ekki galli í sjálfu sér. Öðru máli getur gegnt ef drægnin er mun minni en þessi atriði skýra, eða ef hún hefur minnkað verulega frá fyrri vetrum við sambærilegar aðstæður. Einnig getur komið upp bilun í öðrum búnaði sem dregur til sín orku. Ef orkunotkunin verður óeðlilega mikil miðað við gerð bílsins, til dæmis nálægt 30 kWh/100 km á venjulegum fólksbíl við eðlilegan akstur, getur verið ástæða til að skoða málið nánar.
Margir framleiðendur veita sérstaka ábyrgð á rafhlöðunni, oft til 8 ára eða 160.000 km, sem tryggir að hún haldi tilteknu hlutfalli af upphaflegri getu, oft um 70%. Kynnið ykkur ábyrgðarskilmála bílsins. Ef grunur er um rýrnun er hægt að óska eftir ástandsmælingu á rafhlöðunni (e. State of Health, SOH) hjá þjónustuaðila.
Félagsmenn FÍB geta ávallt leitað til tækniráðgjafa félagsins ef þeir telja að eitthvað sé athugavert við drægni eða rafhlöðu bílsins.
Samantekt
- Notum sætis- og stýrishita og lækkum miðstöðina, en tryggjum að rúður haldist móðulausar.
- Forhitum bílinn í hleðslu.
- Pössum upp á loftþrýstinginn í dekkjunum.
- Hreinsum alltaf snjó og klaka af bílnum.
- Forhitum rafhlöðuna fyrir hraðhleðslu.
Aukaefni – Rafbílaprófanir við vetraraðstæður
Norska bifreiðaeigendafélagið NAF, systurfélag FÍB, stendur á hverju ári fyrir El Prix, stærstu árlegu drægniprófun rafbíla í heiminum. Í síðasta vetrarprófi, 28.–29. janúar 2026, var 24 rafbílum ekið frá Osló norður um Guðbrandsdal og upp á Dovrefjall í 13 til 30 stiga frosti og var tækniráðgjafi FÍB meðal þátttakanda í kaldasta El Prix-prófinu til þessa.

Bílunum var ekið þar til þeir gátu ekki lengur haldið eðlilegum hraða, og drægnin borin saman við uppgefna WLTP-drægni. Enginn bíll náði nálægt uppgefinni drægni. Bestu bílarnir fóru um 29% styttra en WLTP segir til um, en þeir sem komu verst út fóru um 45–46% styttra. Í svona miklum kulda er því raunhæft að gera ráð fyrir að rafbíll komist aðeins rúmlega helming uppgefinnar drægni.
Nánar má lesa um prófið á vef NAF og í umfjöllun FÍB Frétta.
Björn Kristjánsson, tækniráðgjafi FÍB






