Ofurbíllinn U9 Xtreme slær nýtt hraðamet

Lestími: < 1 mín


Þetta tók ekki langan tíma. Ofurbíllinn U9 Xtreme sló nýtt met á dögunum og náði hraðanum 503.17 km/klst. Hann varð fyrsti fjöldaframleiddi bíllinn til að rjúfa 500 km/klst. múrinn. U9 Xtreme er verkefni sem vörumerkið Yangwang er búið að þróa, en það er undir kínverska bíla risanum BYD. Fyrir nokkrum vikum var það aðeins draumur fyrir fyrirtækið að komast hraðar en 500 km/klst.
Prófunin tók sér stað í Abu Dhabi á vegi sem kallast Sheik Khalifa Bin Zayed International Road (E11). Hluta af veginum var lokaður fyrir prófunina eða um 10 km. Deginum fyrir voru tvær tilraunir framkvæmdar þar sem hámarkshraðinn var 490 km/klst. Það var hins vegar ekki nógu gott og eftir smávegis lagfæringar og spark í dekkinn náðist markmiðið daginn eftir.

Sá sem var undir stýri heitir Marc Basseng og er reyndur ökuþór, en hann var einnig undir stýri í Þýskalandi þegar bíllinn náði 496.22 km/klst.

Að sögn Yangwang tryggði aksturinn tvö Guinness heimsmet, mesta hraða sem fjöldaframleiddur bíll hefur náð í akstri í eina átt og mesta hraða sem fjöldaframleiddur rafbíll hefur náð í akstri í eina átt. Það að einungis var keyrt í aðra átt gerir metið að vissu leyti umdeilt. Akstur í báðar áttir er gjarnan notaður í heimsmetum til að vega upp á móti öðrum breytum eins og vindi og halla.

Þegar horft er framhjá ágreiningnum varðandi metið, þá er 503 km/klst. svakalegur hraði.

Deila grein: