Gjaldheimta af bifreiðum er langt umfram útgjöld til viðhalds og uppbyggingar vegasamgangna

Lestími: 3 mín

Í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins kemur fram að gjaldheimta af bifreiðum er langt umfram útgjöld til viðhalds og uppbyggingar vegasamgangna. Bilið milli gjaldheimtu og útgjalda hefur farið vaxandi á síðustu árum. Árið 2025 nam bein gjaldheimta um 64,9 mö.kr., samanborið við 43,9 milljörðum. í heildarútgjöld til vegasamgangna. Mismunurinn var því um 21 milljarður

Í greiningu SI kemur fram að bein gjaldheimta ríkisins af ökutækjum, eldsneyti og akstri hefur verið umfram heildarútgjöld ríkisins til vegasamgangna undanfarin ár. Á árunum 2019–2025 námu beinar tekjur ríkisins af þessum gjaldstofnum samtals 338,1 ma.kr, samanborið við 255,2 ma.kr. í heildarútgjöld til vegasamgangna. Tekjur umfram útgjöld námu því 82,9 mö.kr. á tímabilinu.

Gjaldheimta af bifreiðum var talsvert umfram útgjöld sem fóru í viðhald og nýframkvæmdir á vegakerfinu á árunum 2019-2025. Fjármunir ríkisins til viðhalds og nýframkvæmda námu samtals 180,7 ma.kr. á tímabilinu. Fyrir hverjar 100 krónur sem ríkið innheimti með beinum gjöldum af ökutækjum, eldsneyti og akstri fóru um 53 kr. í viðhald og nýframkvæmdir.

Bilið milli gjaldheimtu og útgjalda hefur farið vaxandi á síðustu árum

Bilið milli gjaldheimtu og útgjalda hefur farið vaxandi á síðustu árum. Árið 2025 nam bein gjaldheimta um 64,9 mö.kr., samanborið við 43,9 ma.kr. í heildarútgjöld til vegasamgangna. Mismunurinn var því um 21 ma.kr. Samkvæmt horfum fyrir árið 2026 verður munurinn um 23,1 ma.kr. Árið 2027 sker sig sérstaklega úr. Þá er bein gjaldheimta áætluð um 83,9 ma.kr., en heildarútgjöld til vegasamgangna um 50,0 ma.kr. Mismunurinn eykst því í tæplega 34 ma.kr.

Gjaldheimtan eykst hratt á sama tíma og útgjöld til vegasamgangna dragast saman að raunvirði. Milli 2025 og 2027 hækkar bein gjaldheimta úr 64,9 ma.kr. í 83,9 ma.kr., eða um 29% að nafnvirði og 18% að raunvirði. Milli 2026 og 2027 hækkar gjaldheimtan um 4,6% að raunvirði, en heildarútgjöld til vegasamgangna lækka um 11% að raunvirði.

Aukin gjaldheimta leiðir ekki sjálfkrafa til aukinna framlaga til vegasamgangna

Samanburðurinn sýnir þannig að aukin gjaldheimta leiðir ekki sjálfkrafa til aukinna framlaga til vegasamgangna. Þvert á móti benda áætlanir fyrir 2026 og 2027 til þess að bilið milli þess sem ríkið innheimtir og þess sem varið er til málaflokksins muni breikka enn frekar.

Þessi þróun á sér stað á sama tíma og ástand vegakerfisins er talið ófullnægjandi og uppsöfnuð viðhaldsþörf veruleg og vaxandi. Í Fjármálaáætlun 2027–2031 kemur fram að um 40% þjóðvega séu í slæmu eða mjög slæmu ástandi og 30% vegakerfisins með slakt burðarlag. Innviðaskuldin í vegakerfinu er umtalsverð og hefur vaxið hratt síðust ár. Í innviðaskýrslu SI og Félags ráðgjafarverkfræðinga frá 2025 fékk vegakerfið ástandseinkunnina 2 af 5 og viðhaldsskuld þess var metin á bilinu 265–290 ma.kr.

Takmarkaðar fjárveitingar til vegakerfisins verða ekki skýrðar með því að tekjur ríkisins af ökutækjum, eldsneyti og akstri séu litlar. Niðurstöðurnar beina því sjónum bæði að tekjuöflun ríkisins og að því hversu stórum hluta þeirra fjármuna sem þegar eru innheimtir er ráðstafað til vegasamgangna.

Skýra verður að þeir fjármunir sem innheimtir eru af umferð renni beint til uppbyggingar

Krafa SI er sú að tryggt verði með skýrum hætti að þeir fjármunir sem innheimtir eru af umferð, hvort sem er í formi skatta, gjalda eða veggjalda, renni beint til uppbyggingar, viðhalds og fjárfestingar í samgönguinnviðum. Svo er ekki og hefur ekki verið síðustu ár. Nái þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027 fram að ganga mun munurinn á tekjum af bifreiðum og útgjöldum ríkisins til vegasamgangna aukast.

Gjaldheimta töluvert umfram útgjöld og bilið breikkar

Bein gjaldheimta ríkisins af ökutækjum, eldsneyti og akstri hefur verið meiri en heildarútgjöld ríkisins til vegasamgangna á síðustu árum. Á árunum 2019–2025 námu tekjurnar samtals 338,1 ma.kr., samanborið við 255,2 ma.kr. í heildarútgjöld til vegasamgangna. Tekjur umfram útgjöld námu því 82,9 ma.kr. á tímabilinu.

Enn minna fór beint í viðhald og uppbyggingu vegakerfisins. Fjármunir til viðhalds og nýframkvæmda  námu samtals 180,7 ma.kr. á árunum 2019–2025. Fyrir hverjar 100 krónur sem ríkið innheimti með beinum gjöldum af ökutækjum, eldsneyti og akstri fóru um 53 krónur í viðhald og nýframkvæmdir.

Munurinn á gjaldheimtu og útgjöldum var minnstur árin 2020 og 2021, þegar tekjur og útgjöld voru nær jafnvægi. Frá árinu 2022 hefur bilið hins vegar breikkað hratt. Það jókst úr 7,8 mö.kr. árið 2022 í 17,2 ma.kr. árið 2023, 18,8 ma.kr. árið 2024 og 21,0 ma.kr. árið 2025. Árið 2026 verður munurinn 23,1 ma.kr. og árið 2027 breikkar bilið enn meira. Þá er áætlað að bein gjaldheimta nemi 83,9 ma.kr., en heildarútgjöld til vegasamgangna 50,0 ma.kr. Mismunurinn verður því 33,9 ma.kr., eða tæplega 11 mö.kr. meiri en árið áður.

Greining SI í heild sinni.

Deila grein: