Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, var í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann kallaði m.a. eftir því að olíufélögin lækki álagningu sína og að stjórnvöld stígi sömuleiðis inn með því að lækka virðisaukaskatt á ný. Bensínlítri kostar nú 253 krónur á höfuðborgarsvæðinu en víða á landsbyggðinni allt að 274 krónur samkvæmt vef Gasvaktarinnar. Lítri af dísilolíu kostar nú víðast hvar um 300 krónur.
Til samanburðar má nefna að þegar virðisaukaskattur var lækkaður tímabundið í sumar kostaði bensínlítrinn um 202 krónur og lítrinn af dísil um 244 krónur.
Bensínverð lækkaði verulega um áramótin þegar innleiðing kílómetragjaldsins tók gildi. Í frétt sem skrifuð var á nýársdag kom fram að á stöð Orkunnar við Laugaveg í Reykjavík hafi verð á bensíni verið 308,5 krónur á næstsíðasta degi nýliðins árs en lítraverðið var komið í 212 krónur eftir miðnætti á nýju ári. Lækkunin nam um 31 prósentum. Að sama skapi fór verð á dísillítranum úr 314,2 krónum í 226,9 krónur sem var um 28 prósenta lækkun.
Hækkunina má rekja til hækkunar á hráolíu erlendis og það tengist átökum Bandaríkjanna og Ísrael í Íran og lokun Hormússunds.
„Það er eitthvað sem við stjórnum ekki en það sem við stjórnum hér eru skattarnir sem eru lagðir á eldsneytið,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, sem var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun um verðhækkun á olíu.
Verðið hækkað mikið í september
Runólfur segir að það megi helst sjá í verðlækkuninni sem var þegar virðisaukaskatturinn var lækkaður tímabundið í ellefu prósent en um mánaðamótin ágúst-september var sú lækkun afnumin og verðið hækkaði aftur.
„Við höfum séð miklar hækkanir síðan,“ segir Runólfur og að bensín hafi frá 1. september hækkað um 52 krónur á lítra.
Hann segir ástandið við Hormússund hafa lítið batnað en það sé örlítið meira flæði en hefur verið en það hafi ekki haft mikil áhrif á verðið. Við getum ekki haft áhrif á það en það sé hægt að hafa áhrif á skattlagningu og álagningu olíufélaganna. Hann bendir á að þau séu mörg hluti af stórum keðjum sem hafi tilkynnt um frystingu matvælaverðs síðustu daga í þeim tilgangi að hemja verðbólgu en Hagar eiga Olís og Bónus, Festi á N1 og Krónuna. Bæði fyrirtæki tilkynntu um verðfrystingu til áramóta. Runólfur bendir á að það hafi ekki að sama verið tilkynnt hvað varðar olíuverðið og álagningin hafi hækkað.
Hann telur að álagning olíufélaganna á hvern lítra sé um 50 til 60 krónur og bendir á að til dæmis hafi nýlega verið greint frá 800 milljóna hagnaði Atlantsolíu en greint var frá methagnaði félagsins í Viðskiptablaðinu í gær. Þar kom fram að Atlantsolía hagnaðist um 740 milljónir króna í fyrra, samanborið við 651 milljón árið 2024.
Runólfur segir meira aðhald varðandi álagningu í dag en áður og vísar til eftirlits sem Samkeppniseftirlitið hefur haft í tengslum við lækkun virðisaukaskatts.
FÍB hefði frekar viljað sjá kolefnisgjaldið tekið niður
Spurður um mögulegar aðgerðir stjórnvalda segir Runólfur að tímabundin lækkun virðisauka hafi verið jákvætt skref. Það hafi staðið vonir til þess að heimsmarkaðsverð myndi lækka á þessum tíma sem lækkunin var í gildi en staðan sé þannig að heimsmarkaðsverð sé hærra í dag en það var þegar virðisaukinn var lækkaður.
Runólfur segir að FÍB hefði frekar viljað sjá kolefnisgjaldið tekið niður. Það hafi hækkað hressilega, eða um 80 prósent á tveimur árum, og í löndum í kring sé verið að lækka álögur til að hjálpa fólki.
Runólfur bendir á að hærra olíuverð hafi ekki bara áhrif á það hvað það kostar fyrir almenning að fara á milli staða heldur sé allt vöruverð háð olíuverði vegna flutnings.
„Þetta skilar sér út í hilluverð í verslunum og í auknum kostnaði við flutninga. Það er til mikils að vinna að reyna að draga úr þessum kostnaði,“ segir hann.
Vilja þak á álagningu
Hann segir FÍB vilja að þak sé sett á álagningu olíufélaga. Það sé fákeppni á Íslandi og það sé ekki eðlileg samkeppni við þær aðstæður. Hann segir Samtök atvinnulífsins mótfallna þessu en hann segist ekki geta séð að það sé eitthvað annað ástand hér en í Belgíu, Þýskalandi eða Danmörku.
Runólfur telur æskilegt að, nú þegar útlit er fyrir að kjarasamningar losni, að olíufyrirtækin lækki sína álagningu og stjórnvöld virðisaukaskattinn sömuleiðis.
„Þessi fyrirtæki hafa komið fram undir öðrum deildum og sagt við erum að geta þetta því við viljum gera samfélaginu gott,“ segir hann og að nú sé tækifæri til að stíga sams konar skref í þágu samfélagsins hvað varðar olíuverð,” sagði Runólfur Ólafsson í Bítinu á Bylgjunni í morgun.







