Þrátt fyrir að ástand íslenska vegakerfisins fari versnandi er boðaður samdráttur í framlögum til vegamála í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027.
Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar, sagði fyrr á þessu ári að árlega þyrfti um 23 milljarða króna til að stöðva frekari hnignun vegakerfisins. Árið 2025 var veitt sérstök þriggja milljarða króna viðbót til viðhalds og í ár nema framlög til viðhalds vega 17,5 milljörðum króna. Gert hafði verið ráð fyrir að þau næðu 20 milljörðum á næsta ári.
Í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins kemur fram að bein gjaldheimta ríkisins af ökutækjum, eldsneyti og akstri hefur verið langt umfram heildarútgjöld ríkisins til vegasamgangna undanfarin ár.
Nú hefur ríkisstjórnin boðað 2,5 milljarða króna niðurskurð í vegamálum auk tveggja milljarða króna skerðingar á framlögum til Betri samgangna. Ljóst er að slík ákvörðun gerir enn erfiðara að takast á við uppsafnaða innviðaskuld sem þegar er orðin eitt stærsta verkefni samgöngukerfisins.
Á sama tíma hefur hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu aukið kostnað við vegaframkvæmdir verulega. Olían hefur bein áhrif á kostnað við aðdrætti, efnisflutninga og rekstur vinnuvéla, auk þess sem verð á malbiki og yfirborðsslitlögum fylgir gjarnan þróun olíuverðs.
Vegaframlög lækka á sama tíma og kílómetragjaldið hækkar
Samhliða niðurskurði í vegamálum hyggjast stjórnvöld hækka kílómetragjaldið um 15,9%. Áætlað er að hækkunin auki tekjur ríkissjóðs um allt að 4 milljarða króna á ári.
FÍB mótmælir þessu harðlega enda um að ræða verulega byrði fyrir heimili og fyrirtæki um land allt. Hækkunin mun auka flutningskostnað, ýta undir verðhækkanir og bitna sérstaklega á þeim sem reiða sig mest á einkabílinn í daglegum ferðum sínum. Þá bendir margt til þess að léttari ökutæki muni bera hlutfallslega þyngri byrðar af breytingunni en stærri ökutæki.
Á meðan skattheimta af umferð vex halda framlög til vegakerfisins hins vegar ekki í við raunverulega viðhaldsþörf. Afleiðingin er sú að innviðaskuldin heldur áfram að hlaðast upp, með tilheyrandi áhrifum á umferðaröryggi, samkeppnishæfni atvinnulífsins og kostnað almennings til framtíðar.







