Bætt vetrarþjónusta og öruggari samgönguleiðir

Lestími: < 1 mín

Bætt vetrarþjónusta, öruggari samgönguleiðir og aukið aðgengi að virkum ferðamátum eru meðal þeirra aðgerða sem ný verkefnastjórn á vegum innviðaráðuneytisins mun vinna að. Stefnt er að því að koma sem flestum aðgerðanna til framkvæmda fyrir lok árs 2028.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu en Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur skipað verkefnastjórn sem hefur nú hafið störf. Hlutverk hennar er að forgangsraða aðgerðum, fylgja þeim eftir og stuðla að innleiðingu þeirra.

Öryggi og aðgengi í forgangi

Aðgerðirnar byggja á tillögum starfshóps sem skilaði drögum að stefnu um virka ferðamáta og smáfarartæki í júní í fyrra. Þær voru meðal annars lagðar til grundvallar nýrri samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040, sem Alþingi samþykkti í sumar.

Markmiðið er að bæta öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda, auka aðgengi að virkum ferðamátum og stuðla að auknum skilningi og virðingu milli ólíkra hópa vegfarenda.

Meðal fyrirhugaðra aðgerða eru úrbætur á samgönguinnviðum, efling vetrarþjónustu og samræming hönnunarviðmiða og skipulags. Þá er gert ráð fyrir aukinni fræðslu, hagrænum hvötum og mótun samgöngustefnu hjá opinberum vinnustöðum.

Í verkefnastjórninni sitja eftirtalin:

  • Ragnheiður Jónsdóttir, formaður, tilnefnd af innviðaráðuneytinu
  • Valgerður Gréta Benediktsdóttir, tilnefnd af innviðaráðuneytinu
  • Bryndís Friðriksdóttir, tilnefnd af Vegagerðinni
  • Finnur Ricart Andrason, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Gunnar Geir Gunnarsson, tilnefndur af Samgöngustofu
Deila grein: