Minningardagurinn hefur mikla þýðingu fyrir samfélagið

Lestími: 2 mín

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa var haldinn í dag um land í gær. Tilgangur dagsins er að minnast þeirra sem hafa látist í umferðarslysum og hvetja fólk til að leiða hugann að umferðaröryggi og ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Fjöldi fólks sótti minningarstundir sem haldnar voru á 17 stöðum um land allt. Við minningarathöfn við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi fluttu Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra ávörp og Haraldur Már Haraldsson sagði reynslusögu sína en hann varð ungur að árum valdur að banaslysi.

Sjónum beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna

Sjónum minningardagsins var að þessu sinni beint að ungum vegfarendum í umferðinni og hraðakstri ungmenna. Hraðakstur er ein helsta orsök alvarlegra slysa og banaslysa meðal ungs fólks.

Í umfjöllun um minningardaginn hefur komið fram að ungir ökumenn eru hlutfallslega talsvert líklegri til að lenda í slysum og óhöppum en þeir eldri. Á hinn bóginn staðfesta gögn frá Samgöngustofu að ungir ökumenn hafi bætt sig á síðustu árum og standi sig almennt betur í umferðinni en áður. Þannig hefur slysum af völdum ungra ökumanna fækkað talsvert á síðustu 20 árum. Einnig hefur slösuðum ungmennum í bifreið einnig fækkað mikið.

Mjög alvarlegar undantekningar eru frá þessari almennu þróun. Síðustu mánuði og misseri hafa orðið hræðileg slys sem rekja má til hraðaksturs eða annarrar áhættuhegðunar ungra ökumanna. Samkvæmt gögnum Lögreglunnar eru skýr merki um að slík áhættuhegðun hafi aukist á ný í afmörkuðum hópum.

Þróuninni mætt með markvissum aðgerðum

Í ávarpi á minningardeginum sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra að stjórnvöld hygðust mæta þessari þróun með markvissum aðgerðum, þ.á m. breytingum á umferðarlögum og fræðsluátaki í samvinnu við ungmenni, foreldra og skólasamfélagið.

„Minningardagurinn hefur mikla þýðingu fyrir samfélagið. Við minnumst þeirra sem látist hafa í umferðarslysum og færum þakkir til viðbragðsaðila. Við horfum um öxl og metum hvað hefur áunnist og hvað gera megi betur. Þótt banaslysum hafi fækkað hlutfallslega yfir lengri tímabil verðum við þó enn vitni að hræðilegum banaslysum. Við höfum þurft að horfast í augu við að mörg ungmenni hafa látið lífið í umferðarslysum vegna hraðaksturs. Við getum ekki setið hjá við slíkar aðstæður – og verðum að grípa til aðgerða. Sett verður af stað sérstakt fræðslu- og kynningarátak um hraðakstur og þá mun ég kynna veigamiklar breytingar á umferðarlögum í samráðsgátt stjórnvalda á næstu dögum. Þeim er ætlað að efla umferðaröryggi enn frekar og stemma stigu við hraðakstri, m.a. með því að styrkja heimildir lögreglu til að bregðast við alvarlegum umferðarlagabrotum. Við verðum að bregðast við og vinna bug á áhættuhegðun í umferðinni með samstilltu átaki okkar allra – samfélagsins alls,“ sagði Eyjólfur Ármannsson.

Við athöfnina flutti MH-kórinn einkennislag dagsins, I Think of Angels. KK samdi lagið til minningar um systur sína, sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið í flutningi KK og Ellenar, systur hans, verður leikið samtímis á öllum útvarpsstöðvum kl. 14 á minningardaginn.

Umferðarslys hafa víðtæk áhrif í samfélaginu

Ljóst er að umferðarslys hafa víðtæk áhrif í samfélaginu og snerta landsmenn alla með einum eða öðrum hætti. Í nýrri könnun Samgöngustofu kom m.a. fram að u.þ.b. fjórðungur Íslendinga, rúmlega 26%, hafi misst náinn ættingja eða vin í umferðarslysi.

Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem tileinka þriðja sunnudag í nóvember þessu efni. Að baki minningardeginum standa innviðaráðuneytið, Samgöngustofa, Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan, Vegagerðin og ÖBÍ réttindasamtök. Þetta er í sextánda sinn sem minningardagurinn er haldinn á Íslandi.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands flutti ávarp á minningardeginum.

Deila grein: