Jari Kauppila forstöðumaður hjá Alþjóðlega samgönguvettvagnum, International Transport Forum (ITF), sem starfar innan vébanda OECD, var gestur á dögunum. Hann fjallaði um fjárfestingar í samgöngum og leiðir til að fjármagna innviðauppbyggingu í alþjóðlegu samhengi eins og fram kemur á vef stjórnarráðsins.
Helstu niðurstöður voru að taka þurfi upp nýjar og sanngjarnar leiðir til fjármögnunar innviða sem gangi jafnt yfir öll ökutæki, þ.m.t. rafbíla. Einnig væri mikilvægt að fjárfesta í almenningssamgöngum og innleiða skýra fjármögnunar- og fargjaldastefnu fyrir þær.
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra fluttu einnig erindi á þinginu. Allar upptökur og kynningarglærur eru á vef Innviðaþings.
Ísland í fararbroddi vegna áforma um kílómetragjöld
Jari fjallaði um þá staðreynd að þróuð ríki standi frammi fyrir minnkandi tekjum af eldsneytissköttum vegna sparneytnari ökutækja og orkuskipta. Það kalli á nýjar og sanngjarnar leiðir fyrir stjórnvöld að fjármagna innviðauppbyggingu, m.a. með innheimtu veggjalda eftir vegalengd (kílómetragjöld) og flýti- og umferðargjalda vegna mikillar umferðar.
Sérstaklega væri mikilvægt að eigendur rafbíla greiði einnig fyrir akstur og notkun á vegum. Jari sagði að í þessum efnum væri Ísland í fararbroddi á heimsvísu, m.a. með áformum um innleiðingu kílómetragjalds sem gangi jafnt yfir öll ökutæki, þ.m.t. rafbíla.
Áhrif rafvæðingar var rannsakað í nýlegri skýrslu á vegum ITF. Lagt er til að nýta blandaðar leiðir til fjármögnunar í takt við aðstæður á hverjum stað. Helstu tillögur skýrslunnar voru:
- Nýta áfram og endurbæta hefðbundna eldneytisskatta og tryggja að skattlagning endurspegli samfélagslegan kostnað umferðar.
- Taka upp einföld veggjöld eftir vegalengd, einkum til að rafbílar greiði sanngjarna hlutdeild.
- Viðbótargjöld á umferðarteppur þar sem þörf krefur – hvati til að dreifa umferð og greiða fyrir umferð.
- Íhuga að eyrnamerkja tekjur af umferðargjöldum til að styðja við virka ferðamáta og almenningssamgöngur.