Nýtt hring­torg við Akur­eyri

Lestími: < 1 mín

Framkvæmdir standa yfir við gerð nýs hringtorgs á mótum Hringvegar og Lónsvegar við bæjarmörk Akureyrarbæjar og Hörgársveitar. Áskorun hefur verið að sinna framkvæmdum í nánd við mikla umferð en vegurinn er einn sá umferðarþyngsti á Norðurlandi.

Verkið ber heitið Hringvegur (1) hringtorg við Lónsveg og felst í gerð hringtorgsins, auk vegtenginga við það. Innifalið í verkinu er gerð á nýju ræsi fyrir Lónsá undir Hringveg en það mun liggja þvert undir nýja hringtorgið.

Einnig er innifalið í verkinu gerð göngustíga sem og gerð nýrrar aðkomugötu frá Lónsvegi að lóð ÁK-smíði, vestan við Hringveg. Jafnframt verður endurgerð tenging að lóð Lónsbakka austan við Hringveg.

Umferðarþungi er mikill á þessum vegkafla sem liggur á mörkum tveggja sveitarfélaga, annars vegar Akureyrarbæjar og hins vegar Hörgársveitar en sveitarfélagsmörkin liggja eftir Lónsá.

Meðalumferð á dag yfir árið (ÁDU) er 5.100 bílar á sólarhring norðan Lónsvegar og 5.800 bílar sunnan Lónsvegar. Á sumrin bætast um 2.000 bílar við á hverjum sólarhring. Á Lónsveginum er umferðin um 520 bílar á sólarhring yfir árið.

Áætlað er að verkinu ljúki í lok október n.k.

Deila grein: