Brot 457 ökumanns voru mynduð á Miklubraut

Lestími: < 1 mín

Myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit í síðustu viku á Vesturlandsvegi, Breiðhöfða og Miklubraut. Brot 457 ökumanns voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 14. – 19. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 31.070 ökutækjum ekið þessa akstursleið. 

Niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu dagana 17.-19. nóvember má sjá hér að neðan.

17.11

Brot 91 ökumanns var myndað á Vesturlandsvegi í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Vesturlandsveg, við Vínlandsleið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.103 ökutæki þessa akstursleið og því óku 8% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 110.

18.11

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Breiðhöfða í Reykjavík. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið norður Breiðhöfða, að Stórhöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 95 ökutæki þessa akstursleið og því óku 35% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði vegna framkvæmda. Sá sem hraðast ók mældist á 64.

19.11

Brot 457 ökumanns voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá 14. – 19. nóvember. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið vestur Miklubraut, á gatnamótum við Grensásveg. Á tímabilinu var 31.070 ökutækjum ekið þessa akstursleið. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93. Fjórtán ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Deila grein: