85% ökutækja þegar komin með skráningu á kílómetrastöðu

Lestími: 2 mín

Skráning kílómetrastöðu ökutækja vegna kílómetragjalds hefur gengið mjög vel. Aðeins á eftir að skrá 15% af þeim rúmlega 300 þúsund ökutækjum sem ný lög um kílómetragjald ná yfir. Kílómetragjaldið, sem varð að lögum um áramót, tekur mið af notkun vega . Þannig verður gjaldtakan sanngjarnari og endurspeglar betur notkun ökutækja á vegakerfinu, um leið og hún skapar stöðugri og fyrirsjáanlegri tekjustofn af umferðinni til framtíðar að því er fram kemur á vef stjórnarráðsins.

Skráning kílómetrastöðu skiptir máli

Kílómetragjald verður greitt mánaðarlega, með svipuðum hætti og rafmagnsreikningurinn, og er fyrsti gjalddagi 1. febrúar næstkomandi.

Skatturinn reiknar meðalakstur út frá síðustu tveimur skráningum á kílómetrastöðu á þeim tíma sem eigandi eða umráðamaður (einstaklingur eða fyrirtæki) hefur átt eða haft ökutæki til umráða og byggist mánaðarleg greiðsla á þeim mælingum. Ef tvær skráningar liggja ekki fyrir áætlar Skatturinn meðalakstur og leggur til grundvallar á bráðabirgðagreiðslu gjaldsins. Hægt er að uppfæra skráningu kílómetrastöðu á 30 daga fresti og verður kílómetragjald leiðrétt í samræmi við nýjustu skráningu.

Mælst er til þess að kílómetrastaða sé sérstaklega skráð fyrir 20. janúar ef:

  • Ökutæki hefur verið keypt nýlega og einungis er til ein akstursskráning á eignar-/umráðatíma.
  • Ökutækið er nýlegt og því ekki þurft að fara í aðalskoðun árlega.
  • Notkun ökutækisins hefur breyst, minnkað eða aukist, og fyrri skráningar endurspegla ekki núverandi notkun.

Eigendur eyðslufrekra bíla græða en aðrir borga umtalsvert meira

Skattabreytingarnar um áramótin koma mjög misjafnlega út gagnvart neytendum. Í grunninn mun orku og kílómetragjaldskostnaður verða hærri hjá öllum sem aka rafbílum, tengiltvinnbílum og léttum eyðslugrönnum bílum. Eigendur stórra, þungra og eyðslufrekra ökutækja munu eftir breytinguna njóta þess að borga umtalsvert minna vegna eldsneytisnotkunar og nýja kílómetragjaldsins heldur en þeir borguðu fyrir áramót.

Mikill verðmunur

Margir útsölustaðir á landsbyggðinni bjóða aðeins upp á hærri verðin en íbúar á höfuðborgarsvæðinu njóta mestrar verðsamkeppni. Munurinn á dýrasta bensínlítranum hjá N1 og þeim ódýrasta hjá Costco er 43,60 krónur. Miðað við fjölskyldubíl sem ekið er 15.000 kílómetra á ári og eyðir 7 lítrum af bensíni á hverja 100 kílómetra þá sparast ríflega 65.000 krónur yfir árið ef hægt er að nýta ódýrasta dropann í stað þess dýrasta.

Nánari upplýsingar og aðstoð

Með nýjum lögum um kílómetragjald féllu olíu- og bensíngjöld niður og í staðinn var tekið upp gjald sem miðast við hvern ekinn kílómetra. Samhliða þessum breytingum hefur kolefnisgjald verið uppfært þannig að það endurspegli betur raunverulega losun CO2 vegna notkunar jarðefnaeldsneytis. Þar með er gerður skýr aðskilnaður á milli annars vegar gjaldtöku fyrir notkun vega og hins vegar gjaldtöku fyrir losun CO2. Uppfært kolefnisgjald styður því áfram við orkuskipti og tryggir að minnstur kostnaður verður við rekstur rafmagnsbíla og að eyðslumeiri bílar greiða meira.

  • Skráning kílómetrastöðu fer fram á Mínum síðum á Ísland.is, á vefsíðu eða í smáforriti (appi). Sé þörf á aðstoð vegna skráningarinnar er hún veitt hjá þjónustuveri Ísland.is í síma 426 5500 og á netfanginu island@island.is.
  • Skatturinn sér um framkvæmdina. Ef spurningar vakna um atriði sem varða hana eða greiðsluseðla er hægt að hringja í Skattinn í síma 442 1000 eða senda póst á km@skatturinn.is.
  • Á vefsíðunni vegirokkarallra.is er að finna upplýsingar um nýja kerfið, það er hvernig það virkar og hvers vegna er verið að taka það upp.
Deila grein: