Mesta janúarsala í Danmörku í sex ár

Lestími: < 1 mín

Í gegnum tíðina hefur janúar oft verið líflegur mánuður í í bílasölu í Danmörku þegar nýárssýningar og opin hús laða kaupendur í sýningarsali. Bílasala jókst um heil 18% frá því í janúar í fyrra og náði 12.800 fólksbílum í ár samkvæmt tölum frá bilstatistik.dk. Þetta er mesta janúarsala í sex ár.

Hæsta hlutdeild rafbíla sem mælst hefur í einum mánuði

„Aukningin drífst að miklu leyti áfram af rafbílasölu, sem setur nýtt og afgerandi met með 83% hlutdeild. Þetta er hæsta hlutdeild sem mælst hefur í einum mánuði,“ segir Ilyas Dogru, neytendahagfræðingur hjá Félagi danskra bifreiðaeigenda, FDM. Þessi mikla sala á rafbílum skilur lítið pláss eftir fyrir aðra orkugjafa. Bensínbílar voru 10,7% af sölunni og dísilbílar 2,5%.

„Rafbílar eru fyrsta val hjá langflestum á meðan bensínbílar geta enn átt erindi í ákveðnum verðflokkum. FDM gerir ráð fyrir að allt að 95% einstaklinga sem fá afhentan nýjan bíl árið 2026 muni velja rafbíl. Þetta eru orðnar svipaðar aðstæður og í Noregi,“ segir Ilyas Dogru.

Toyota stærst í janúar

Toyota nýtur góðs af þessari rafvæðingu. Langvinsælasti bíllinn í janúar var bZ4X, en 1.348 nýskráningar gefa uppfærðri útgáfu bílsins frábæra byrjun. Þar með endurtekur bíllinn sigur sinn frá því í janúar í fyrra.

Deila grein: