Leið­bein­ingar um samgöngumat komnar út

Lestími: < 1 mín

Vegagerðin hefur gefið út leiðbeiningar um samgöngumat sem miða að því að tryggja faglegt, gagnsætt og samræmt mat á áhrifum uppbyggingar á samgöngur. Sveitarfélög eða uppbyggingaraðilar vinna samgöngumat þegar uppbygging er talin geta haft umtalsverð áhrif á samgönguinnviði, svo sem vegna framkvæmda, skipulags eða breytinga á skipulagi að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Betri yfirsýn á áhrif uppbyggingar á samgöngur innan sveitarfélagsins

Samgöngumat veitir sveitarfélögum betri yfirsýn á áhrif uppbyggingar á samgöngur innan sveitarfélagsins. Jafnframt er matið mikilvægt fyrir Vegagerðina svo mögulegt sé að kortleggja áform sveitarfélaga með tilliti til áhrifa á umferð og samgönguinnviði og bregðast við með viðeigandi ráðstöfunum. Niðurstöður mats geta m.a. nýst til forgangsröðunar verkefna, gerð framkvæmdaáætlana og til að styðja við heildstæða þróun samgönguinnviða í tengslum við uppbyggingu.

Umfang matsins skal vera í samræmi við eðli og aðstæður hvers verkefnis fyrir sig. Matið skal unnið sem hluti af undirbúningi framkvæmda eða uppbyggingar og það getur farið fram á mismunandi stigum ferilsins. Þó er æskilegt að vinna það eins snemma í ferlinu og kostur er. 

Hvernig nýtast leiðbeiningarnar?

Leiðbeiningarnar nýtast  við að móta og forgangsraða aðgerðum sem stuðla að sjálfbærari og skilvirkari þróun samgangna. Í leiðbeiningunum eru m.a. sett viðmið um hvenær samgöngumat er nauðsynlegt.  

Samgöngumat nær til allra samgöngumáta og nær yfir öll stig uppbyggingar, eða allt frá fyrstu hugmyndum til framkvæmdar. Það á jafnt við nýjar framkvæmdir sem og breytingar á nýverandi byggð og innviðum. Með matinu á að fást heildstæð mynd af áhrifum á samgöngukerfi Vegagerðarinnar, auk þess að styðja við ákvarðanatöku.  

Leiðbeiningar um samgöngumat má finna hér.   

Deila grein: