Þegar kemur að hraðakstri og sektum í Evrópu er svarið dálítið tvískipt en í sumum löndum er fjöldi hraðasekta mikill vegna gríðarlegs fjölda hraðamyndavéla, á meðan önnur „refsa“ harðar með háum sektarupphæðum.
Miðað við fjölda sekta þá standa tvö lönd upp úr. Austurríki gefur út flestar sektir á hverja 1.000 íbúa í Evrópu. Þar eru eftirlitskerfi mjög skilvirk og mikið um fastar myndavélar. Holland fylgir fast á eftir en þar í landi er nánast sjálfvirkt sektarkerfi og fjöldi myndavéla, þar á meðal kerfi sem mæla meðalhraða á löngum köflum.
Flestar hraðamyndavélar á Ítalíu
Ítalía er landið með flestar hraðamyndavélar í Evrópu, yfir 8.000 talsins, sem skilar sér í gífurlegum fjölda sekta ár hvert. Í Noregi er beitt háum sektum. Lágmarkssekt fyrir hraðakstur á hraðbraut er um 711 evrur, rúmlega 100.000 íslenskum krónum og sektirnar hækka hratt eftir það.
Í Sviss og Finnlandi eru notaðar tekjutengdar sektir fyrir alvarleg brot. Ef um hátekjumenn er um að ræða getur ein hraðasekt kostað þúsunda evra.
Þýskaland er er eina landið þar sem hraðakstur er í raun löglegur á ákveðnum köflum þar sem engin takmörk eru. Það er á svonefndum autobahn. Þar er meðalhraðinn hæstur en hafa verður í huga að takmörk eru þar sum staðar einnig til staðar og sektirnar orðnar mun hærri en þær voru fyrir nokkrum árum.
Í könnunum sem gerðar eru af og til í þessum efnum kemur í ljós að Pólland er það land þar sem margir ökumenn fylgja hraðatakmörkunum frekar „frjálslega“, þó að sektir þar hafi hækkað verulega nýlega til að sporna við því.







