Breytingar á leigubifreiðalögum samþykktar á Alþingi

Lestími: 2 mín

Frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur var samþykkt á Alþingi í gær. Meginbreytingin er sú að stöðvaskylda hefur verið endurvakin og leigubifreiðastjórar eiga að vera skráðir hjá leigubifreiðastöð með gildu starfsleyfi að því er fram kemur á vef stjórnarráðsins.

Leigubifreiðastöðvum verður einnig gert skylt að skrá rafrænt allar ferðir leigubifreiðastjóra (rekstrarleyfishafa), þ.m.t. upphafs- og endastöð, staðsetningu bifreiðar og akstursleið og greiðslur farþega. Loks eiga stöðvar að bjóða upp á einfalt og gagnsætt ferli fyrir kvartanir og ábendingar farþega.

„Það er fagnaðarefni að Alþingi hafi samþykkt nauðsynlegar breytingar á lögum um leigubifreiðaþjónustu. Stöðvaskylda hefur verið endurvakin og rafrænt eftirlit innleitt, sem tryggir aukið aðhald og öryggi í greininni. Ný reglugerð hefur nú lokið samráðsferli og verður ný námskrá kynnt fljótlega.

Þetta er fyrsta skrefið í að leggja grunn að leigubifreiðamarkaði sem byggir á fagmennsku, öryggi og gagnsæi. Markaði sem speglar þá gestrisni sem við viljum að einkenni Ísland. Farþegar eiga rétt á öruggu verðlagi og leigubílstjórar á heilbrigðu starfsumhverfi þar sem leikreglur eru skýrar. 

Ég vil þakka umhverfis- og samgöngunefnd sérstaklega fyrir vel unnið starf við málið,“ segir Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, + avef stjórnarráðsins.

Helstu lagabreytingar:

  • Stöðvaskylda – Ekki verður lengur leyfilegt að reka leigubílaþjónustu án þess að tengjast leigubifreiðastöð með gildu starfsleyfi. Leigubifreiðastjórar þurfa að vera skráðir hjá viðurkenndri leigubifreiðastöð.
  • Rafrænt eftirlit og varðveisla gagna – Leigubifreiðastöðvum er skylt að skrá rafrænt allar ferðir leigubifreiðastjóra (rekstrarleyfishafa) á þeirra vegum, þ.m.t. upphafs- og endastöð, staðsetningu bifreiðar og akstursleið og greiðslur farþega. Stöðvarnar eiga að varðveita upplýsingarnar í minnst 60 daga og er skylt gera árlega úttekt á stafrænum kerfum til að tryggja öryggi gagna. 
  • Neytendavernd – Leigubifreiðastöðvar skulu bjóða upp á einfalt og gagnsætt ferli fyrir kvartanir og ábendingar, þannig að farþegar geti tilkynnt um óeðlilega hátt verð eða slæma þjónustu. Þá verður leigubílstjórum jafnframt skylt að upplýsa farþega sérstaklega um þessi réttindi sem og möguleika á að kvarta til viðeigandi stjórnvalda hverju sinni.

Breytingar á reglugerð væntanlegar

Fyrr í ár kynnti innviðaráðherra tillögur að veigamiklum breytingum á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu (nr. 324/2023) í samráðsgátt stjórnvalda. Verið er að vinna úr ábendingum en búast má við að ný reglugerð taki gildi innan skamms. Breytingar snúa m.a. að eftirliti Samgöngustofu með leyfishöfum, próftöku, eftirliti með námskeiðshöldurum, hátternisreglum leigubifreiðastöðva og kröfum um framsetningu á verðskrá og sýnileika á leyfisskírteini. Loks eru áform um að leigubifreiðar verði auðkenndar með sérstöku skráningarmerki (litaðar númeraplötur):

Lagabreytingarnar sem nú hafa verið samþykktar og fyrirhugaðar breytingar á reglugerð eru fyrstu skrefin í heildarendurskoðuninni en starfshópur skipaður af ráðherra er enn að störfum og mun meta þörf á frekari breytingum.

Deila grein: