Eyjólfur Ármannsson með starfshópnum. Frá vinstri eru: Valgerður, Hólmfríður, Eyjólfur, Sigríður og Valtýr formaður hópsins. Á myndina vantar Jón Árnason.

Tveir meginvegir Vestfjarða verði skilgreindir sem hluti af Hringveginum

Lestími: 2 mín

Starfshópur sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra skipaði leggur til að vegir nr. 60 (Vestfjarðavegur) og nr. 61 (Djúpvegur) verði skilgreindir sem hluti af Hringvegi 1, aðalþjóðveginum sem tengir saman landshluta í stað þess að stærri hringur um Vestfirði yrði skilgreindur Hringvegur 2. Það muni jafna stöðu Vestfjarða gagnvart öðrum landshlutum og styrkja byggðir á svæðinu.

Innviðaráðherra fékk minnisblað starfshópsins afhent í síðustu viku  og verður tillagan tekin til skoðunar í ráðuneytinu. Í minnisblaði starfshópsins er leitast við að greina mismundi sjónarmið og kosti þess og að breyta vegnúmerum á Vestfjörðum og voru tveir valkostir bornir saman.

  • Hringvegur 1 – minni hringur (vegir nr. 60, 61)
  • Hringvegur 2 – stór hringur (vegir nr. 60, 61, 62, 63, 68)

Jafnar stöðu landshlutans og styrkir byggðir

Helstu rök starfshópsins fyrir því að skilgreina tvo meginvegi um Vestfirði sem hluta af Hringvegi 1 er að það muni jafna stöðu Vestfjarða gagnvart öðrum landshlutum og styrkja byggð á svæðinu . Leiðin sem um ræðir verður öll með bundnu slitlagi árið 2027 og þeir vegir sem um ræðir svipaðir að gæðum og stærstur hluti af Hringvegi 1.

Þar sem hópnum var upphaflega falið að skoða kosti og galla þess að skilgreina hringveg 2 um Vestfirði var sá kostur fyrst skoðaður og starfshópurinn taldi að skilgreining Hringvegar 2 gæt orðið öflugt markaðstæki fyrir Vestfirði, jafnað búsetuskilyrði og stuðlað að auknum ferðamannastraumi. Það væri þó ljóst að nafnabreyting ein og sér væri ekki nægjanleg til að ýta undir aukið viðhald og vetrarþjónustu og væri auk þess líklegt til að skapa væntingar um betri vegi en þeir tilteknu vegkaflar geta staðið undir.

Starfshópurinn telur að vörumerkið „Vestfjarðaleiðin“ sé sterkara en Hringvegur 2 fyrir Vestfirði og því væri vegnúmerið 2 ekki brýnt fyrir ferðaþjónustu á svæðinu.

Niðurstaða starfshópsins er því eins og áður segir sú að í stað þess að breyta fimm vegnúmerum á Vestfjörðum í Hringveg 2 verður tveimur meginvegnúmerum breytt í Hringveg 1. Þannig verði Vestfirðir ekki lengur eina heila landssvæðið á Íslandi sem Hringvegurinn (þjóðvegur 1) liggur um.

Deila grein: