Nýskráningar 2.639 á fyrstu tíu vikum ársins

Lestími: < 1 mín

Á fyrstu tíu vikum þessa árs eru nýskráningar fólksbifreiða alls 2.639 en voru á sama tíma á síðasta ári 1.588. Aukningin á milli ára er rúmlega 66%. Þegar einstakir mánuðir eru skoðaðir voru nýskráningar í janúar 1.385 og lækkaði snarlega niður í 850 bifreiðar í febrúar. Það sem af er marsmánuði eru nýskráningar alls 439 af því er fram kemur í tölum frá Bílgreinasambandinu.

Ástæða mikillar fjölgunar nýskráninga á  fyrstu vikum ársins tengist fyrst og fremst hækkun vörugjalda um áramótin. Af þeim sökum var fjöldi bíla tollafgreiddur fyrir áramót, einkum bílaleigubílar, og þeir síðan skráðir og teknir í notkun í byrjun janúar. Fjölgunin endurspeglar því tímasetningu tollafgreiðslu og skráninga frekar en skyndilega aukna eftirspurn á nýju ári.

Flestar nýskráningar í tengiltvinnbílum

Það sem af er árinu eru flestar nýskráningar í tengiltvinnbílum, alls 905 bifreiðar. Hybridbílar koma í öðru sæti með 779 nýskráningar og hreinir rafbílar 733. Bílar til ökutækjaleiga nema 64% af sölunni og til almennra notkunar 36%.

Flestar nýkráningar eru í Hyundai, alls 464 bifreiðar, sem er um 17,6% hlutdeild í heilardarsölunni til þessa á árinu,. Dacia er í öðru sæti með 389 bifreiðar og KIA í þriðja sætinu með 361 bifreiðar.

Deila grein: