Fleiri hlynntir en andvígir samgönguáætlun

Lestími: < 1 mín

Ný könnun Maskínu sýnir að fleiri landsmenn eru hlynntir forgangsröðun í samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar en andvígir henni. Um 44% svarenda segjast hlynnt forgangsröðuninni á meðan tæplega þriðjungur er henni andvígur.

Þegar niðurstöðurnar eru greindar eftir búsetu kemur þó í ljós að afstaða er ekki einsleit um landið. Íbúar á Austurlandi eru mun gagnrýnni en aðrir landsmenn; þar segjast tæplega 55% andvígir forgangsröðuninni en aðeins um 27% hlynnt. Þetta kann að skýrast af því að Fjarðarheiðargöng voru færð aftar í forgangsröðun áætlunarinnar.

Til samanburðar virðast íbúar á höfuðborgarsvæðinu jákvæðastir gagnvart áætluninni.

Um 800 tóku afstöðu

Könnunin var framkvæmd dagana 25. febrúar til 3. mars 2026 og var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er slembiúrtak úr Þjóðskrá. Alls tóku 1.002 einstaklingar þátt, 18 ára og eldri, búsettir víðs vegar um landið. Þar af var rúmur fimmtungur sem sagðist annaðhvort ekki vita nægilega mikið um málið eða neitaði að svara.

Gögnin voru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs, búsetu og menntunar til að tryggja að niðurstöðurnar endurspegli þjóðina sem best að því fram kemur í tilkynningu.

Deila grein: