Útlit er fyrir vonskuveður næstu daga og víða gæti færð spillst. Vegir gætu farið á óvissustig og jafnvel lokað með skömmum fyrirvara. Vegfarendur eru hvattir til að fara með gát þar sem varhugaverðar akstursaðstæður geta skapast meðan veðrið gengur yfir og fylgjast vel með upplýsingum um veður og færð á umferdin.is og vedur.is.
Einnig er hægt að hringja í þjónustusíma Vegagerðarinnar 1777, sem er opinn milli kl. 06:30 til 22:00 alla daga vikunnar. Þá verður stórstreymt næstu daga og spáð töluverðri öldu og því er fólk beðið um að hafa varann á við sjávarsíðuna. Nánari upplýsingar eru á Sjólag.is.
Búast má við miklum leysingum í dag
Í dag, fimmtudag, ganga skil yfir landið með mildara lofti og mikilli eða talsverðri rigningu. Búast má við miklum leysingum og líkur eru á að vatn og krapi flæði yfir vegi þar sem frárennsli og niðurföll eru víða full af snjó. Jafnframt er spáð hvassviðri, snjókomu og slyddu.
Líkur eru á að færð spillist á Holtavörðuheiði, Þröskuldum, Steingrímsfjarðarheiði og öðrum fjallvegum á Vestur- og Norðvesturlandi.
Einnig má búast við að færð gæti spillst á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi, Hellisheiði og Mosfellsheiði en á morgun, föstudag og laugardag, er spáð snjókomu með hvassviðri.
Aðfaranótt sunnudagsins er svo von á nýrri lægð með snjókomu á suðvesturhluta landsins. Lægðin færist svo yfir Norðausturland seinnipart sunnudagsins.
Stórstreymt næstu daga
Einnig verður stórstreymt næstu daga. Það mun verða mikil alda og stórstreymt á suðvesturhorninu. Fólk er því beðið um að hafa varann á við sjávarsíðuna. Nánar má fylgjast með á Sjólag.is.
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun á stórum hluta landsins sem tók gildi í gærkvöldi og framundir laugardagsmorgun.







