Ný verðkönnun FÍB á rafgeymum, sem framkvæmd var í mars 2026, sýnir að töluverður munur getur verið á verði milli söluaðila. Í könnuninni var óskað eftir verði í 70 Ah rafgeymi sem hentar fyrir dísil fjölskyldubíl með start-stopp búnaði. Miðað var við Toyota Auris, árgerð 2016, sem krefst EFB geymis með að lágmarki 640A kaldræsivinnslu.
Ekki var tekið tillit til þátta eins og biðtíma, þjónustu, ástandsmælinga eða ísetningar, sem getur vegið þungt þegar kemur að kaupákvörðun.
Bið eftir ódýrasta kostinum
Samkvæmt könnuninni er Fastparts með ódýrasta geyminn, Maxgear 85 EFB á 14.900 kr.. Þess má þó geta að panta þarf rafgeyma með 2-3 vikna fyrirvara hjá Fastparts. Costco fylgir þar á eftir með Bosch AGM geymi á 26.999 kr., en viðskiptavinir þar þurfa einnig að greiða árlegt meðlimagjald.
Á hinum endanum er Stilling með dýrasta geyminn í þessari könnun á 46.990 kr.. Verðmunurinn á ódýrasta og dýrasta geyminum er því rúmlega 215%, sem sýnir að mikill sparnaður getur falist í því að bera saman verð.
Niðurstöður verðkönnunar 2026
| Söluaðili | Verð m/vsk | Tegund | Amp | Kaldræsi (CCA) | FÍB afsláttur |
| Fastparts* | 14.900 kr. | Maxgear 85 EFB | 70ah | 720A | – |
| Fastparts* | 16.300 kr. | Exide EL700 EFB | 70ah | 720A | – |
| Fastparts* | 24.000 kr. | Bosch 0 092 EFB | 70ah | 760A | – |
| Costco | 26.999 kr. | Bosch AGM | 70ah | 760A | – |
| Toyota | 30.218 kr. | Tudor EFB | 70ah | 640A | 10% |
| Skeljungur | 33.923 kr. | ZAP Carbon EFB | 77ah | 750A | – |
| Olís | 34.700 kr. | Exide EFB | 70ah | 760A | – |
| Skorri | 34.900 kr. | Tudor EFB | 70ah | 720A | 12% |
| N1 | 34.990 kr. | Banner EFB | 75ah | 700A | – |
| AB Varahlutir | 34.992 kr. | GS EFB | 75ah | 700A | 15% |
| Kemi | 35.087 kr. | Bosch EFB | 70ah | 760A | 15% |
| Automatic | 35.995 kr. | Intact EFB | 70ah | 720A | 15% |
| N1 | 37.990 kr. | Banner AGM | 70ah | 720A | – |
| Olís | 40.700 kr. | Exide AGM | 72ah | 760A | – |
| Rafgeymasalan | 40.900 kr. | Varta Silver AGM | 70ah | 760A | – |
| Poulsen | 42.900 kr. | Bosch AGM | 70ah | 760A | 15% |
| Bílanaust | 43.571 kr. | Varta AGM | 70ah | 760A | 15% |
| Hekla | 45.937 kr. | VAG EFB | 70ah | 680A | 10% |
| Stilling | 46.990 kr. | Yuasa 7000 EFB | 65ah | 650A | 15% |
Verð eru birt án FÍB afsláttar / *Þarf að panta, afhending eftir 2-3 vikur.
AGM eða EFB?
Bílar með start-stopp kerfi þurfa sérstaka rafgeyma sem þola fleiri ræsingar og meira álag. Í könnuninni var tekið tillit til þess að EFB geymar voru ekki alltaf í boði hjá öllum söluaðilum og því var í þeim tilfellum miðað við verð á AGM geymum.
Mikilvægt er að hafa í huga að AGM geymar eru oftar en ekki dýrari en EFB geymar þar sem tæknileg útfærsla þeirra er fullkomnari. Þeir henta vel fyrir einfaldari bíla en eru sérstaklega hannaðir fyrir dýrari og stærri bifreiðar með flókinn tæknibúnað sem krefst mikils álagsþols. EFB geymarnir eru aftur á móti þolnari gagnvart hleðslu og afhleðslu sem getur skilað sér í löngum líftíma í mörgum tegundum bíla.
FÍB mælir ávallt með því að fylgja leiðbeiningum framleiðanda um gerð rafgeyma. Auk þess að huga að amperstundum (Ah) er gott að skoða kaldræsiamper (CCA), sem segja til um ræsigetu geymisins í kulda.







