Volkswagen söluhæsta bílategundin í Evrópu á fyrstu tveimur mánuðum ársins

Lestími: < 1 mín

Samkvæmt nýjustu sölugögnum fyrir fyrstu tvo mánuði þess árs er Volkswagen áfram söluhæsta bílategundin í Evrópu þegar litið er til heildarsölu vörumerkja. Hins vegar hafa orðið athyglisverðar breytingar á markaðnum á fyrstu mánuðum ársins:

Þótt heildarmarkaðurinn hafi dregist saman um tæp 4% í janúar, héldu stóru framleiðendurnir sínum hlut en með ólíkum árangri.

Volkswagen er enn stærsta vörumerkið í Evrópu með yfir 100.000 selda bíla í janúar einum, þrátt fyrir um 11% samdrátt miðað við árið áður. Toyota vermir annað sætið yfir vinsælustu einstöku vörumerkin .Skoda hefur sýnt mestu sóknina á nýju ári og er nú þriðja stærsta vörumerkið í Evrópu sem er sögulegur árangur fyrir merkið.

Vinsælustu bílgerðirnar

Þegar litið er á einstaka módel hafa tveir bílar barist um efsta sætið það sem af er árinu. Renault Clio hefur efur verið söluhæsti bíll Evrópu á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Dacia Sandero sem var söluhæsti bíllinn árið 2025, fylgir fast á eftir í öðru sæti. Tesla Model Y er enn söluhæsti rafbíllinn.

Deila grein: