Lokan­ir á fjöl­mörg­um vegum og óvissa með Reykja­nesbraut

Lestími: 2 mín

Samkvæmt veðurspám verður ekkert ferðaveður á landinu snemma í fyrramálið, fimmtudag, og fram yfir hádegi. Fjölmargir vegir verða lokaðir og óvíst er með Reykjanesbraut.

Búast má við töluverðum truflunum í samgöngum á öllu landinu í fyrramálið enda spáð vonskuveðri. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og miðhálendinu í morgunsárið en gular viðvaranir verða í öðrum landshlutum.

Af þessum sökum hefur Vegagerðin ákveðið að loka ákveðnum vegum eða setja þá á óvissustig. Það þýðir að vegir geta lokast með litlum fyrirvara.

Hér að neðan er listi yfir þá vegi sem eru á óvissustigi eða verða lokaðir. Tímasetningar eru til viðmiðunar en staðan er endurmetin reglulega. Nauðsynlegt er að fylgjast með á umferdin.is til að fá nýjustu upplýsingar um lokanir vega. Einnig er hægt að hafa samband við umferðarsíma Vegagerðarinnar í 1777.

Suðvesturland

  • Reykjanesbraut – óvissustig frá kl. 6:00
  • Sandgerðishringur – óvissustig frá kl. 6:00
  • Grindavíkurvegur, Nesvegur – óvissustig frá kl. 6:00
  • Lyngdalsheiði, Gjabakki,Þingvallav – óvissustig frá kl. 8:00
  • Hellisheiði – lokun kl. 4:00
  • Þrengsli – lokun kl. 4:00
  • Mosfellsheiði og Kjósaskarð – lokun kl. 5:00
  • Kjalarnes – lokun kl. 4:00
  • Hafnarfjall – lokun kl. 4:00
  • Suðurstrandarvegur – lokun kl. 4:00
  • Krýsuvík – lokun kl. 3:00
  • Hvalfjarðargöng – lokun kl. 4:00

Vesturland

  • Holtavörðuheiði – lokun kl. 5:30
  • Brattabrekka – lokun kl. 5:30
  • Svínadalur – óvissustig frá kl. 8:00
  • Fróðárheiði – lokun kl. 5:30
  • Vatnaleið – lokun kl. 5:30

Vestfirðir

  • Þröskuldar – óvissustig frá kl. 7:00
  • Steingrímsfjarðarheiði og Djúp – óvissustig frá kl. 7:00
  • Gemlufallsheiði – óvissustig frá kl. 7:00
  • Dynjandisheiði – lokun klukkan 6:00
  • Miklidalur – óvissustig frá kl. 6:00
  • Hálfdán – óvissustig frá kl. 6:00
  • Kleifaheiði – óvissustig frá kl. 6:00
  • Klettsháls – óvissustig frá kl. 6:00

Norðvesturland

  • Siglufjarðarvegur – óvissustig
  • Þverárfjall – óvissustig frá kl. 9:00
  • Vatnsskarð – óvissustig frá kl. 9:00

Norausturland

  • Öxnadalsheiði – óvissustig frá kl. 6:00
  • Víkurskarð – Lokað
  • Kópasker – Vopnafjörður – óvissustig frá kl. 11:00
  • Mývatns- og Möðrudalsöræfi – óvissustig frá kl. 11:00

Austurland

  • Fagridalur – óvissustig frá kl. 12:00
  • Fjarðarheiði – óvissustig frá kl. 10:00
  • Vatnsskarð eystra – óvissustig frá kl. 10:00

Suðausturland

  • Kirkjubæjarklaustur – Öræfasveit – lokun frá kl. 6:00
  • Öræfasveit – Höfn – lokun frá kl. 6:00
  • Höfn – Djúpivogur
Deila grein: