Heimsmarkaðsverð á hróaolíu (Brent) hefur hækkað yfir 50% frá því að átökin í Íran hófust í byrjun mars. Hér á landi hefur mesta verðhækkunin verið hjá Costco, 35,90 krónur á bensínlítra og 48,70 krónur á dísillítra. Allir markaðsaðilar hafa verið að hækka reglulega eldsneytisverðið hjá sér í mars. Dýrast er bensínið og dísilolían á nokkrum stöðvum hjá N1. Bensínlítrinn er á 242,70 krónur og dísillítrinn á 271,70 krónur. Ódýrast er eldsneytið ennþá hjá Costco sem þó hefur hækkað mest. Bensínið hjá Costco er á 204 krónur og dísillítrinn á 238 krónur. Lítri af bensíni hjá Orkan ódýrt er 6,5 krónum yfir Costco og dísillinn 7,5 krónum dýrari. Það var ein jákvæð frétt í morgun um það að Atlantsolía býður núna upp á ódýrasta verðið sitt á öllum stöðvum félagsins.
Tímabundin lækkun eldsneytisskatta
Víða um heim hafa stjórnvöld ákveðið að lækka opinberar álögur á eldsneyti tímabundið til að draga úr neikvæðum verðlagsáhrifum róttækra olíuverðshækkana á framfærslu almennings og reksturskostnað fyrirtækja. Stjórnvöld í Svíþjóð, Noregi, Írlandi, Spáni, Portúgal, Indlandi og Ástralíu hafa þegar boðað lækkun. Ýmist er verið að lækka olíuskatta eða virðisaukaskatt.

Ekkert að gerast hjá íslenskum stjórnvöldum
Tímabundin lækkun skatta á eldsneyti eða akstur virðist ekki vera meðal aðgerða sem íslensk stjórnvöld eru tilbúin að beita til að stemma stigum við verðlagshækkunum. Fjármálaráðherra lýsti því yfir þann 24. mars að ekki stæði til að lækka eldsneytisgjöld. Það er ljóst að það er ekki bara dýrara að fylla á bílinn heldur munu átökin í Íran þrýsta verðbólgu upp. Hér á landi virðast stjórnvöld uppteknari af því að boða auknar álögur á akstur og umferð frekar en að stemma stigum við neikvæðum verðlagsáhrifum hærra olíuverðs á heimsmarkaði.
Kolefnisgjald á bensín- og dísillítra hækkaði um síðustu áramót og hafði einnig hækkað ári áður. Kolefnisgjald á bensín hefur hækkað um 48,2% frá 31. desember 2024. Var 11.70 krónur á lítra en er nú 24,25 krónur. Með virðisaukaskatti er kolefnisgjaldið ríflega 30 krónur á lítra af bensíni. Kolefnisgjaldið á lítra af dísilolíu er 28,30 krónur og ríflega 35 krónur með virðisaukaskatti. Það ætti að vera möguleiki að draga tímabundið úr þessari skattheimtu eða lækka kílómetragjaldið. Svona mildandi aðgerðir draga úr reksturskostnaði heimila og fyrirtækja og draga úr neikvæðum verðlagsáhrifum á flutninga og framleiðslu.







