Þingvallavegur

Vetrar­þjón­usta um páska

Lestími: 2 mín

Margir hyggja á ferðalög um páskana. Þá er mikilvægt að fylgjast vel með upplýsingum á umferdin.is og kanna að auki veðurspá áður en lagt er af stað, enda allra veðra von.

Vegagerðin sinnir vetrarþjónustu yfir páskana líkt og aðra daga ársins, en á rauðum dögum (helgidögum) gildir þó helgartíma-þjónusta.

Á sumum leiðum milli landshluta, sem að jafnaði eru ekki þjónustaðar um helgar (5 daga þjónusta), verður þó leitast við að tryggja að umferð komist leiðar sinnar. Það getur falið í sér breytingar á mokstursdögum eða að bætt verði við aukadegi, ef veður og umferð gefa tilefni til.

Vaktstöð Vegagerðarinnar fylgist vel með veðri og færð allan sólarhringinn.

Umferðarþjónustan (sími 1777) er opin alla daga frá kl. 06:30 til 22:00.

Neyðarsími á vaktstöð er gefinn upp í aðalnúmeri Vegagerðarinnar 522-1000 eftir að skiptiborði er lokað.

Hugleiðingar veðurfræðings

Hæðarhryggur fer yfir landið í dag. Lægir fyrir hádegi á vestanverðu landinu og dregur smám saman úr éljum, en áfram vestan 10-15 m/s austanlands fram eftir degi. Hiti 1 til 6 stig, en nálægt frostmarki austanlands. Seint í dag er hæðarhruggurinn kominn yfir austanvert landið og þar verður þá breytileg átt 3-8 m/s, en snýst í vaxandi suðaustanátt með dálítilli vætu vestanlands.

Gengur í suðaustan hvassviðri eða storm í nótt með rigningu eða snjókomu, en þurrt að mestu norðanlands.

Lægir og kólnar á morgun, fyrst suðvestantil. Snjókoma eða slydda víða um land, en dregur smám saman úr ofankomu síðdegis, eins og áður, fyrst suðvestantil. Suðvestan 8-13 og él undir kvöld, en suðaustan 15-23 með snjókomu eða slyddu á norðaustanverðu landinu fram að miðnætti. Hiti um eða rétt yfir frostmarki.

Breytileg átt 5-13 á föstudag, él sunnan- og vestanlands, en bjart að mestu annars staðar. Fer að snjóa norðaustantil um kvöldið. Hiti um frostmark yfir daginn, en víða næturfrost.

Á laugardag og sunnudag verður suðvestlæg eða breytileg átt. Dálítil él á víð og dreif sunnantil, en snjókoma fyrir norðan. Hiti um eða undir frostmarki.

Deila grein: