Bílasala tók mikinn kipp í október en einungis í þessum eina mánuði voru þær 600 talsins. Í ágúst og september mátti merkja aukningu í nýskráningum en október er annar hæsti mánuðurinn í nýskráningum á þessu ári. Í janúar voru þær 789. Þetta kemur fram í tölum frá Bílgreinasambandinu.
Nýjar reglur um ríkisstyrki tóku gildi um mánðarmótin
Ástæðuna fyrir þessari aukningu má að mestu rekja til nýrra reglna um ríkisstyrki sem tóku gildi 1. nóvember sl. Stjórnvöld tilkynntu lækkun á styrkjum til kaupa á nýjum rafknúnum fólksbílum. Styrkurinn fór úr 500.000 krónum niður í 400.000 krónur fyrir nýja fólksbíla. Hámarksverð á bílum sem eru styrkhæfir lækkar úr 10 milljónum króna niður í 8 milljónir króna. Búist var við að þessar breytingar gæti haft áhrif á nýskráningar sem nú hefur komið í ljós.
Nýskráningar orðnar 11.61 sem er 1.7% aukning á milli ára
Nýskráningar á fyrstu tíu mánuðum ársins voru 11.641 en á sama í tíma í fyrra voru þær 11.448. Aukningin á milli ára nemur 1,7%. Flestar nýskráningar eru í hreinum rafbílum en þær eru alls orðnar 6.322 bifreiðar það sem af er árinu. Það gerir um 54,3% hlutdeild. Hybrid-bílar koma í öðru sæti með 2.256 bifreiðar sem er um 19,5% hlutdeild. Tengiltvinnbílar koma í þriðja sæti með 1.993 bifreiðar og 17,1% hlutdeild.
Hlutdeild nýorkubíla á þessu ári er 91%
Hlutdeild nýorkubíla á markaðnum í nýskráningum er því tæplega 91% á þessu ári. Bensín_ dísilbílar eru með 9% hlutdeild. KIA og Toyota skera sig úr í nýskráningum það sem af er árinu. KIA er með 1.449 nýskráningar og 1.435. Tesla er í þriðja sætinu með 996 og Hyundai með 747.






