Colas Ísland hefur tekið í notkun nýja og sérhannaða rannsóknarstofu sem er talin sú fullkomnasta sinnar tegundar á Íslandi. Rannsóknarstofan er búin bestu fáanlegu tækjum til gæðaprófana, rannsókna og þróunar á malbiki, bindiefnum og steinefnum. Opnun rannsóknarstofunnar markar mikilvæg tímamót í íslenskri vega- og mannvirkjagerð.
Íslenskt veðurfar og umferðarálag reyna gríðarlega á slitlag vega
Íslenskt veðurfar og umferðarálag reyna gríðarlega á slitlag vega. Með samfelldum gæðaprófunum á hráefnum og lokaafurðum samkvæmt stöðlum tryggir Colas gæði allra sinna CE-merktu vara, sem skilar sér í endingarbetri vegum og minni viðhaldsþörf.
„Rannsóknarstofan gegnir lykilhlutverki í þeim rannsóknar- og þróunarverkefnum sem miða að því að minnka kolefnisspor malbiksframleiðslu, meðal annars með þróun nýrra bindiefna, aukinni endurnýtingu malbiks og vistvænni aðferðum við vegagerð“ segir Sigurrós Arnardóttir, rannsóknarstofustjóri Colas.
Rannsóknarstofan er 135 fermetrar að stærð og er í höfuðstöðvum Colas að Gullhellu. Henni er skipt upp í tvö sérhönnuð rými. Annað rýmið er hannað og útbúið fyrir staðlaðar prófanir á malbiki og steinefnum en hitt er nýtt í hefðbundnar og háþróaðar prófanir á hreinu biki, þjálbiki og bikþeytu.
Allur tækjabúnaður er í fremstu röð
Allur tækjabúnaður er í fremstu röð. Þar er meðal annars að finna tæki til að útbúa staðlaða kjarna og prófa mikilvæga eiginleika malbiks, þar á meðal holrými, sig og festu. Tveir hágæða bikbrennsluofnar eru í rannsóknarstofunni en þeir mæla bindiefnismagn í malbiki með mikilli nákvæmni.
Þá er þar að finna búnað til sigtunar kornakúrfu og mælinga á rúmþyngd steinefna, seigjumæla fyrir bik og þjálbik, tæki til að mæla stungudýpt og mýkingarmark í biki, sem og búnað til að meta bindiefnismagn, brothraða og seigju í bikþeytu.
„Aðstaðan gerir Colas kleift að bæta við frekari tækjabúnaði á komandi árum, halda áfram frekari þróun og efla starfsemina enn frekar eftir því sem tækninni fleygir fram,“ bætir Sigurrós við.
Sigurrós segir að fjárfestingin endurspegli metnað Colas til að vera leiðandi í gæða- og þróunarmálum. „og styður þannig við uppbyggingu á öruggari, hagkvæmari og sjálfbærari samgöngumannvirkjum fyrir samfélagið í heild.“

Myndatexti: Sigurrós Arnardóttir, rannsóknarstofustjóri Colas.







