Miklar umferðartafir hafa verið á stofnæðum síðdegis í Reykjavík síðustu tvo daga vegna framkvæmda á rampi frá Bústaðavegi niður á Hafnarfjarðarveg. Unnið var að fræsun og malbikun á rampinum
Í dag hefur Vegagerðin auglýst framkvæmdir frá Bústaðavegi niður á Kringlumýrabraut í norðurátt frá klukkan 11 til 15 og af þeim sökum er varað við umferðartöfum. Of kalt er til framkvæmda á nóttinni en umferðartafir í gær voru meiri en búast var við.
Samkvæmt upplýsingum hafði umferðardeild lögreglunnar óskað eftir því að þessar framkvæmdir færu fram á nóttunni til að koma í veg fyrir umfarðartafir. Við því var ekki vegna veðurfarsaðstæðna.
Vegagerðin segir varla nógu hlýtt yfir daginn til þess að sinna þessum störfum en of kalt er á nóttunni og er það miður. Ekki er búist við jafnmiklum umferðartöfum í dag. Viðgerðir eru ekki eins stórar og síðustu daga og ættu að taka styttri tíma.
Framkvæmdir verða í dag á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegs í suðurátt milli 11 og 15 og beygjuakreinum fækkað í eina á meðan. Vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.
Uppfært
Vegagerðin hefur frestað framkvæmdum í Reykjavík vegna veðurs. Til stóð að gera við ramp frá Bústaðavegi niður á Kringlumýrarbraut og ráðast í framkvæmdir á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegs.
Það hefur nú verið slegið af vegna veðurs. Fyrsti snjór vetrarins féll í höfuðborginni í morgun.







