Þýsku bifreiðaeigendasamtökin ADAC hafa aldrei haft í meiru að snúnast en á árinu 2025. ADAC fær neyðarkall vegna bilunar á níu sekúndna fresti að meðaltali. Á síðasta ári sinnti vegaaðstoð ADAC samtals 3.691.813 útköllum, sem er um 60.000 1,6 prósent) fleiri en árið 2024.
Vandamál tengd rafgeymum algengasta orsökin
Met var slegið þann 29. desember þegar útköllin urðu 18.588, en þann dag var kallað eftir aðstoð ADAC á 5 sekúndna fresti. Flest útköll í einum mánuði voru í janúar, eða 356.847 talsins. Líkt og fyrri ár voru vandamál tengd rafgeymum algengasta orsökin, eða í 45% tilfella. Þar á eftir komu bilanir í vélstjórnun eða háspennukerfum, innspýtingu og skynjurum, eða í yfir 20% tilfella.
Bilanir í rafbílum hafa einnig aukist vegna fjölgunar þeirra og hækkandi aldurs rafbílaflotans. Hreinir rafbílar áttu hlut að 50.445 útköllum, sem er um 15 prósenta aukning frá árinu 2024. Gallaður ræsirafgeymi var ástæðan í um helmingi tilfella og því einnig algengasta orsökin þar. Bílar með tengiltvinnbúnað biluðu einnig oftar á síðasta ári.
ADAC hefur skráð mikla aukningu á stafrænum neyðarköllum Árið 2025 jókst hlutfall bilana sem tilkynntar voru í gegnum app eða vefapp um 16 prósent miðað við 695.520 tilfelli.
ADAC stærsta félag bifreiðaeigenda í Evrópu
ADAC er stærsta félag bifreiðaeigenda í Evrópu með 22,7 milljónir meðlima. Um 1.700 Starfsmenn ADAC og 550 samstarfsfyrirtæki með um 5.000 ökutæki veita meðlimum vegaaðstoð um allt Þýskaland. Á síðasta ári réð ADAC yfir 181 nýjan starfsmann til að styrkja aðstoðarnetið, þar af 146 sem vaktmenn á vegum úti.







