Útlit er fyrir vonskuveður næstu daga og víða gæti færð spillst. Vegir gætu farið á óvissustig og jafnvel lokað með skömmum fyrirvara. Vegfarendur eru hvattir til að fara með gát þar sem varhugaverðar akstursaðstæður geta skapast meðan veðrið gengur yfir og fylgjast vel með upplýsingum um veður og færð á umferdin.is og vedur.is.
Einnig er hægt að hringja í þjónustusíma Vegagerðarinnar 1777, sem er opinn milli kl. 06:30 til 22:00 alla daga vikunnar. Þá verður stórstreymt næstu daga og spáð töluverðri öldu og því er fólk beðið um að hafa varann á við sjávarsíðuna. Nánari upplýsingar eru á Sjólag.is.
Vegir víða ófærir
Vegurinn um Holtavörðuheiði er lokaður en verið er að skoða aðstæður. Jafnvel ef hægt verður að opna veginn er útlit fyrir að færðin verði mjög slæm. Hægt er að fara hjáleið um Laxárheiði og Heydal en vegurinn þar er mjög slæmur og vatn rennur yfir hann.
Brattabrekka er lokuð meðan unnið er að því að losa bíla sem eru fastir á veginum. Næstu upplýsingar gætu komið um klukkan tíu.
Ófært er um Dynjandisheiði, Steingrímsfjarðarheiði og Þröskulda. Vegirnir um Hálfdán, Kleifaheiði og í Mikladal eru á óvissustigi og gætu lokast með litlum fyrirvara.
Á Öxnadalsheiði er snjóþekja og óveður. Vegurinn er á óvissustigi og gæti lokast með skömmum fyrirvara. Snjóþekja er víða á vegum á Norðurlandi. Á Þverárfjalli er stórhríð með slæmu skyggni og þæfingsfærði er á Vatnsskarði.
Aðfaranótt sunnudagsins er svo von á nýrri lægð með snjókomu á suðvesturhluta landsins. Lægðin færist svo yfir Norðausturland seinnipart sunnudagsins.
Stórstreymt næstu daga
Einnig verður stórstreymt næstu daga. Það mun verða mikil alda og stórstreymt á suðvesturhorninu. Fólk er því beðið um að hafa varann á við sjávarsíðuna. Nánar má fylgjast með á Sjólag.is.
Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun á stórum hluta landsins sem tók gildi í gærkvöldi og framundir laugardagsmorgun.
Uppfært 09.30







