Formúla 1 mætir á bíóskjáinn

Lestími: < 1 mín

Formúla 1 er íþrótt sem hefur verið gríðarlega vinsæl en á síðustu árum hefur áhuginn fyrir íþróttinni farið vaxandi. Þættirnir Drive to Survive, sem Netflix gaf út fyrst árið 2018, hafa hjálpað til við að kynna íþróttina fyrir nýjan markhóp og aukið vinsældir hennar. Núna er verið að kynna enn stærra verkefni en það er bíómynd sem kallast F1, eða Formúlu 1 bíómyndin. 

Joseph Kosinski leikstýrir bíómyndinni, en hann leikstýrði einnig Top Gun: Maverick. Frægi Hollywood leikarinn Brad Pitt fer með aðalhlutverkið ásamt Damson Idris, Kerry Condon og Javier Bardem. Einnig sér snillingurinn Hans Zimmer um tónlist myndarinnar.

Tökur á myndinni áttu sér gjarnan stað á raunverulegum Formúlu 1 kappakstursbrautum. Það eru einnig margir af þeim ökumönnum sem keppa sem koma fram í bíómyndinni. 

Bíómyndin fjallar um Formúlu 1 bílstjórann Sonny Hayes, leikinn af Brad Pitt, sem var duglegur að keppa á tíunda áratug síðustu aldar, en þarf að setjast í helgan stein eftir alvarlegan árekstur. Hins vegar fær hann boð um að koma aftur til að leiðbeina nýliða fyrir Formúlu 1 liðið Apex Grand Prix. 

Bíómyndin verður frumsýnd í flestum bíóum landsins, miðvikudaginn 26. júní.

Deila grein: