BMW iX3 var valinn bæði bíll ársins og rafbíll ársins árið 2026 á alþjóðlegu bílasýningunni sem fór fram í New York. Um er að ræða fyrsta bílinn í hinni nýju „Neue Klasse“ línu BMW og vakti hann mikla athygli dómnefndar, sem skipuð var af 98 bílablaðamönnum frá 33 löndum.
Með þessum árangri bætir BMW við tveimur nýjum titlum í safnið og hefur bílaframleiðandinn nú unnið til alls 11 verðlauna í sögu World Car Awards.
Háþróuð tækni og einstök akstursupplifun
BMW iX3 sameinar glæsilega frammistöðu, háþróaða tækni og einstaka akstursupplifun en vélin skilar 469 hestöflum og 645 Nm togkraft. Það tekur bílinn 4,9 sekúndur að fara úr kyrrstöðu í hundrað. BMW iX3 er með allt að 805 km drægni samkvæmt WLTP staðlinum og hann styður allt að 400 kW hraðhleðslu við kjöraðstæður og getur því farið úr 10% í 80% hleðslu á aðeins 21 mínútu.
BMW iX3 býr yfir nýrri kynslóð stjórn- og upplýsingakerfis frá BMW, Panoramic iDrive, en það sameinar skjái og upplýsingagjöf með skýrum og notendavænum hætti. Niðurstaðan er betri yfirsýn fyrir ökumann og þægilegri akstursupplifun. Stjórnkerfi bílsins, svokallað „Heart of Joy“, stýrir aksturseiginleikum bílsins, á meðan öflugar ofurtölvur sjá um sjálfvirkan akstur, bílastæðaaðstoð, afþreyingu og helstu grunn- og þægindakerfi. Þessi háþróaða tækni BMW tryggir framúrskarandi veggrip, mikla nákvæmni í akstri og einstaklega mjúka hemlun.







