Í könnun sem gerð var í Noregi kemur í ljós að flestir Norðmenn þrjóskast við að forðast liti á bílunum sínum. Meirihlutinn vill greinilega hafa þetta dálítið dauflegt.Upplýsingaráð umferðarinnar (OFV) hefur verið úti að telja bíla og flokka þá eftir litum og litaleysi.
Þann 15. mars 2026 voru 2.899.455 fólksbílar skráðir í Noregi. Af þeim voru um 735.000 gráir, auk 263.000 silfurlitaðra, og 728.000 svartir. Þetta þýðir að gráir og svartir bílar einir og sér telja 50,5 prósent bílaflotans, 59,6% ef silfur er tekið með. Hvítt er í þriðja stærsti liturinn með 388.667 bíla og 13,4 prósenta hlutdeild.
,,Grátt, svart og hvítt eru litir sem mörgum finnst öruggt og tímalaust val. Það eru enn þessir litir sem einkenna bíla á norsku vegunum og við sjáum sama mynstrið á notaðra bíla markaðnum,“ segir Geir Inge Stokke, forstjóri OFV.
Af 117.629 eigendaskiptum á fólksbílum sem skráð hafa verið í Noregi það sem af er ári var svartur algengastur með 28,3%. Þar á eftir kom grátt með 26,2% hlutdeild og hvítt með 13,9%.
Grátt drottnar
Svart hefur lengi verið algengasti bílliturinn í Noregi, en gráir bílar skipa nú 25,35% af flotanum, samanborið við 25,11% hjá svörtum bílum. Ef silfurgráum bílum er bætt við er talan heil 34,2%.
Það áhugaverðasta við tölurnar núna er kannski að grátt hefur tekið fram úr svörtu og er orðið algengasti bílliturinn í Noregi, segir Stokke.
Á eftir fyrstu fjórum stærstu litunum fylgja silfur, sem hér er aðskilið frá gráu, rautt, brúnt og grænt. Sérstæðari litir eins og appelsínugult, gult og fjólublátt vega enn mjög lítið í heildarfjölda bíla.
Yfir 16 þúsund nýskráningar það sem af er árinu
Hlutlausir litir drottna einnig meðal nýskráðra bíla. Frá 1. janúar til 15. mars á þessu ári voru 16.079 nýir fólksbílar nýskráðir í Noregi. Grátt var langalgengasta valið með 5.271 bíl og 32,8% hlutdeild. Svart fylgdi á eftir með 4.242 bíla og 26,4%, á meðan hvítt var í þriðja sæti með 2.766 bíla og 17,2%.
Blár var fjórði algengasti liturinn með 1.735 bíla og 10,8% hlutdeild. Samanlagt stóðu grátt, svart, hvítt og blátt undir 87,1% af öllum nýjum fólksbílum sem skráðir hafa verið það sem af er ári 2026.







