Blekkingar á bílastæðinu við Domus

Lestími: < 1 mín

Neytendastofa sektaði Parka fyrir að blekkja bíleigendur sem nota bílastæðið við Domus við Egilsgötu 3. Parka fullyrðir á skilti við bílastæðið að rafræn vöktun eigi sér stað með álestri á númeraplötur. Engar slíkar myndavélar er hins vegar að finna á bílastæðinu og því er með engu móti hægt fyrir Parka að staðreyna hvenær bíl var lagt eða hvenær hann fór. Enda virðist Parka slétt sama um það, fyrirtækið treystir einfaldlega á að fólk skrái og borgi viðveruna í Parka appinu eða í greiðsluvél á staðnum. Þeir sem ekki gera það borga ekkert.

Þrátt fyrir milljón króna sekt og bann Neytendastofu við að halda þessum viðskiptaháttum áfram hafði Parka engum upplýsingum breytt á Egilsgötu 3 tveimur vikum eftir ákvörðun Neytendastofu.

Þar sem engin myndavélaskráning fer fram á þessu bílastæði, þá hefur Parka engin úrræði til að ganga úr skugga um viðveru bíls önnur en hafa starfsmann á staðnum.

Þetta er líklega dýrasta bílastæði landsins, sólarhringurinn kostar 18.240 krónur.

Deila grein: