Árið 2013 voru kynntar tillögur um þörf fyrir breytingar á örorkumati og bótagreiðslum vegna umferðarslysa. Þrettán árum síðar eru þær enn óafgreiddar í dómsmálaráðuneytinu. Árið 2013 var Skoda Octavia mest seldi bíllinn á Íslandi.
FÍB hefur áður fjallað ítarlega um þessar úrbótatillögur. Í síðustu viku kynntu Neytendasamtökin úttekt á sama máli og lögðu til aðgerðir. Nánar um tillögur NS má lesa á ns.is.
Bætt það sem ekki þarf endilega að bæta
Annars vegar snýst málið um að yfir 80% örorkubóta vegna umferðarslysa eru vegna örorkumats á bilinu 1-15%. Ekki er sjálfgefið að svo lágt matshlutfall þýði að aflahæfi (tekjumöguleikar) viðkomandi skerðist um sömu prósentu. Bætur hafa samt ávallt miðast við örorkumatið.
Hins vegar hafa komið fram tillögur um að vinna við örorkumat eftir bílslys verði einfölduð og framkvæmd undir einum hatti. Kostnaður tryggingafélaganna vegna þessarar matsvinnu nemur hátt í 4 milljörðum króna á ári. Talið er að hægt sé að lækka kostnaðinn umtalsvert með miðlægri matsmiðstöð.
Breytingar sem geta leitt til lægri iðgjalda
Tryggingafélögin hafa sóst eftir þessum breytingum og bæði FÍB og Neytendasamtökin tekið undir. Leiða má líkur að því að minni tjónagreiðslur og lægri matskostnaður skili sér í lægri iðgjöldum.
Áform um lagabreytingar í þessa veru voru lögð fram í samráðsgátt stjórnvalda árið 2022. Í framhaldinu fól dómsmálaráðuneytið Viðari Má Matthíassyni fyrrum hæstaréttardómara og Eiríki Jónssyni, prófessor og landsréttardómara að vinna breytingar á ákvæðum skaðabótalaga um örorkumat og örorkunefnd. Viðar Már og Eiríkur skiluðu ráðuneytinu drögum að frumvarpi 2023.
Síðan hefur ekkert til málsins spurst og dómsmálaráðuneytið hefur ekki svarað fyrirspurnum FÍB um hvað líði afdrifum tillagna Viðars Más og Eiríks.







