Mikil svifryksmengun hefur verið á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu en kalt og mjög þurrt veður hefur verið ríkjandi í langan tíma. Í janúar komu þó dagar þar sem hlýtt var í veðri miðað við árstíma. Gróft svifryk hefur mælst í miklu magni víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu og hafa gildi á nokkrum stöðum verið óholl fyrir viðkvæma. Rykbindiefni sem notað er til að draga úr loftmengun kláraðist en von er á nýjum birgðum til landsins um helgina. Reykjavíkurborg og Vegagerðin kaupa saman umrætt rykbindiefni. Vegagerðin réðst í hreinusun gatna á höfuðborgarsvæðinu í byrjun febrúar en augljós hefði mátt ganga í það verkefni með meiri afgerandi hætti en gert var.
Til rykbindingar er notað magnesíumklóríð sem er saltblanda sem hefur reynst vel til að binda ryk og er aðgerð sem að t.d. hefur verið beitt á hinum Norðurlöndunum og í fleiri löndum sem glíma við svipaðar aðstæður og við. Þetta er m.a. notað mikið í Bandaríkjunum og víða í Evrópu.“
Í allri þessari umræðu er vert að skoða hvað er að gerast í þessum efnum hjá nágrönnum okkar á Norðurlöndunum. Hreinsun gatna t.d. í Helsinki, höfuðborg Finnlands, er mikið nákvæmisverk og leggja borgaryfirvöld mikinn metnað í að vinna þetta verk með skipulögðum hætti svo árangur verður ótvíræður. Sérstaklega eftir langan vetur þegar moka þarf burt tonnum af sandi og hálkuvarnarefnum. Þetta ferli er kallað vorhreinsun og er nauðsynlegt til að draga úr svifryki.
Fyrsti sjálfstýrði, rafknúni sópvinnubíllinn
Helsinki er í fararbroddi þegar kemur að sjálfstýrðri tækni og borgin hefur verið að prófa og innleiða róbóta við götuþrif til að gera ferlið skilvirkara og umhverfisvænna. Frægasta dæmið er líklega Trombia Free, sem er þróað af finnska fyrirtækinu Trombia Technologies. Þetta er heimsins fyrsti sjálfstýrði, rafknúni sópvinnubíll í fullri stærð. Hann sópar upp sandi, ryki og rusli án þess að nota vatn sem er óvenjulegt en mjög skilvirkt gegn fínu svifryki.
Kostir við notkun hans er að hann er hljóðlaus og notar aðeins um 15% af þeirri orku sem hefðbundnir dísilsópar þurfa. Hann hefur verið prófaður mikið á Jätkäsaari svæðinu og á göngustígum meðfram sjónum.
Minni sjálfstýrð tæki til að halda gangstéttum hreinum
Á veturna hefur Helsinki einnig prófað minni sjálfstýrð tæki til að halda gangstéttum hreinum. Þetta eru litlar sjálfvirkar vélar sem geta bæði mokað snjó og dreift hálkuvarnarsandi. Í þeim eru skynjarar og myndavélar til að greina vegfarendur og forðast árekstra, sem er lykilatriði í þéttbýli.
Einn af kostum róbótana er að þeir geta unnið á nóttunni þegar lítið er um fólk, án þess að trufla svefn íbúa þar sem þeir eru hljóðlausir. Þeir fylgja fyrirfram ákveðnum rissum með millimetra nákvæmni. Á meðan þeir þrífa safna þeir gögnum um ástand malbiksins og loftgæði, sem hjálpar borginni við skipulagningu.
Helsinki setti sér það markmið að vera ,,snjallasta“ borg heims og þessir róbótar eru hluti af verkefnum þar sem fyrirtæki fá að prófa tækni sína í raunverulegum aðstæðum. Það væri alveg ástæða til að Vegagerðin og Reykjavíkurborg skoði þennan róbót nánar og aldrei að vita að hann myndi koma í góðar þarfir við þrif á götum og gangstéttum hérlendis.







