Nýr MGS6 kominn á íslenskan markað

Lestími: < 1 mín

Nýjasta viðbótin í MG fjölskylduna er kominn á íslenskan markað en það er nýr MGS6 sem er fjórhjóladrifinn og vel útbúinn bíll í Luxury útfærslu. Drægni bílsins er allt að 485 km samkvæmt WLTP staðli. Rafmótorar skila bílnum 362 hestöflum þannig að það er talsvert afl sem bíllinn hefur yfir að ráða og er hann 5,1 sekúndu frá 0-100 km/klst. 

Háþróað aðstoðar aksturskerfi með virka neyðarhemlun

Bíllinn er með MG Pilot Custom sem er háþróað aðstoðar aksturskerfi með virka neyðarhemlun, aðvörun um frávik frá akrein, blindsvæðavörn ofl. Ökumaður getur valið úr fimm akstursstillingum sem hjálpa til í mismunandi aðstæðum: normal, sport, eco, snow eða custom. Í innanrýminu má einnig finna 12,8” snertiskjá og sjónlínuskjá sem gefur ökumanni allskonar upplýsingar. Bíllinn er með 360° myndavélar sem hentar vel í óþægilegum aðstæðum.

Panorama glerþak með radifnu skyggni

MG hefur lagt talsvert í bílinn varðandi lúxusinn. Bíllinn er með Panorama glerþaki með radifnu skyggni, Það er rúskinnsáferð á innréttingunni og 11 hátalara hljóðkerfi sem gefur betri hljóm en áður í MG. 

Nýr MGS6 er ágætlega rúmgóður fyrir fólk og farangur. Farangursrýmið er 674 lítrar og frammí undir húddinu bætist við 124 lítrum af hentugu rými sem má nota t.d. fyrir innkaupapoka ofl.

Deila grein: