Mercedes-AMG voru að gefa út nýjasta sportbílinn sinn, en hann er hraðasti AMG bíllinn hingað til. Hann er meira að segja hraðari en ofur bíllinn AMG One.
Nafnið á sportbílnum er Mercedes-AMG GT 63 S E PERFORMANCE og er hann mjög myndarlegur með aggresívu en glæsilegu útliti. Þetta er bíll sem er byggður fyrir hraðan akstur, enda svo lágur að hann límist næstum því við jörðina.
Undir vélarhlífinni er hann búinn 4,0 lítra V8 vél með tvöfalda forþjöppu (biturbo). Gefið er upp að hann sé 816 hestöfl, V8 vélin skilar 612 hestöflum og svo er rafmagnsmótor sem bætir við 204 hestöflum. Þetta veitir bílnum aukinn kraft þegar tekið er af stað og gefið í.
Krafturinn sem bíllinn býður upp á er svakalegur en hann er 2,8 sekúndur frá 0-100 km/klst og hámarkshraði bílsins er 320 km/klst. Það nánast tekur lengri tíma að þula upp nafnið á bílnum heldur en að botna bílinn, hann er það hraðskreiður.
Bíllinn býður ekki bara upp á hraða heldur einnig lúxus. Akstursætið er þægilegt og veitir ökumanni góðan stuðning í akstri, sem er mikilvægt fyrir svona bíl. Hann kemur einnig með MBUX margmiðlunarkerfi sem býður upp á allskonar auka þægindi fyrir ökumann á borð við afþreyingu og upplýsingar.