Nýr og uppfærður Subaru Solterra 2026 verður frumsýndur hjá BL í lok febrúar. Bíllinn kemur með fjölda tæknibreytinga og aukið notagildi miðað við fyrri gerð og markar mikilvægt skref í rafvæðingu Subaru.
Solterra 2026 kemur með stærri rafhlöðu en áður, 73,1 kWh og hleðslustýringin hefur verið endurbætt sem viðheldur betri hleðsluhraða við kaldar aðstæður. Þetta var ein helsta gagnrýni fyrri tegundar en með þróaðari tækni eykst bæði nýtni og raunhæft notagildi við íslenskar aðstæður, sem geta verið kröfuharðar.
Drægni bílsins nær allt að 512 km samvkæmt WLTP
Drægni bílsins nær allt að 512 km samvkæmt WLTP staðli, sem er bæting frá eldri útfærslu. Aflið hefur einnig aukist og er bíllinn fáanlegur með tveimur rafmótorum sem skila allt að 342 hestöflum í öflugustu útfærslum.
Hleðslugetan hefur verið uppfærð og styður Solterra núna hraðhleðslu allt að 150 kW, þá er hægt að hlaða rafhlöðuna frá 10% í 80% á u.þ.b. 30 mínútum við kjöraðstæður. Bíllinn er einnig búinn Tesla-samhæfu hleðslutengi, sem eykur aðgengi að hleðsluneti og einfaldar notkun í daglegum akstri.
Fjórhjóladrif verður áfram staðlaður búnaður í anda Subaru og hjálpar bílnum í allskonar aðstæðum. Innrétting hefur jafnframt verið uppfærð með stærri miðlægum skjá, nýju notendaviðmóti og bættum tengimöguleikum, sem færir Solterra nær þeim kröfum sem er ætlast að rafmagnsbílum í dag.
Með þessum breytingum stefnir Subaru að því að styrkja samkeppnishæfni Solterra á rafmagnsbíla markaðnum og bjóða neytendum öflugri og tæknivæddari jeppa sem nýtist vel í íslenskar aðstæður.







