Bílar í hið minnsta fimm ökumanna urðu fyrir miklu tjóni í síðustu viku vegna snjóruðningstækis sem ók í gagnstæða átt við þá á Vegagerðin segir að málið verði kannað til hlýtar. Ökumennirnir fimm létu allir vita af tjóninu í umræðuhópi á samfélagsmiðlinum Facebook en þar birtu þeir jafnframt myndir af brotnum framrúðum og brotnum hliðarspeglum. Málið verði skoðað gaumgæfilega. Vegagerðinni hafi borist nokkrar tjónatilkynningar vegna málsins.
Ökumenn hvattir til að senda inn tjónatilkynningu
Vegagerðin hvetur þá sem hafa orðið fyrir tjóni að senda inn tjónatilkynningu sem hægt er að gera í gegnum heimasíðu Vegagerðarinnar. Einhverjar tilkynningar um snjó á bíla hafa borist en ekki svona margar og sumar reyndar annars staðar af landinu. Allt þetta verði skoðað.
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, var í viðtali í Reykjavík síðdegis um málið. Spurningar vakna í framhaldinu hver ber ábyrgð þegar svona atvik koma upp.
Runólfur sagði töluvert um það að ökumenn leiti til FÍB um ástand vega og um ýmiss konar tjón sem þeir verða fyrir.
,,Ökumenn eru hvattir til að skrá inn tjón inn á veggáttina, vegbot.is, ef vart verður við annmarka í umhverfi vega. Þá er hugsanlegt að hægt sé að koma þeim skilaboðum áleiðis. Það myndar þá líka ákveðna ábyrgð hjá veghaldara, ef hann mátti vita og hafði tíma til að vara við eða laga það sem út af hefur farið. Það hefur hjálpað mikið til þegar gögn eru til staðar.“
Viðtalið við Runólf í heild sinni má nálgast hér.







