FÍB hefur aukið þjónustuframboð sitt til félagsmanna með nýrri viðbótarvernd sem tekur til eigináhættu vegna kaskó- og framrúðutjóna. Um er að ræða sérstaka aukatryggingu sem endurgreiðir kostnað vegna sjálfsábyrgðar verði tjón á ökutæki, hvort sem um er að ræða kaskó- eða framrúðutjón.
Viðbótarverndin er unnin í samstarfi við danska tryggingafélagið Tryg Forsikring A/S og er miðlað af Tryggingamiðlun Íslands. Allir félagsmenn FÍB hafa nú tækifæri til að kaupa viðbótarverndina jafnt gegn kaskó- eða framúðutjóni. Einnig er í boði að taka báða valkosti á sérstökum afsláttarkjörum sem gildir fyrir alla bíla upp að 15 ára aldri.
Kostnaður fyrir framrúðu og kaskóvernd í eitt ár er:
- 16.800 krónur fyrir bíla 0–10 ára
- 18.800 krónur fyrir bíla 11–15 ára
Gildir einnig fyrir bílaleigubíla erlendis
Viðbótarverndin tekur jafnframt til sjálfsábyrgðar vegna tjóna á bílaleigubílum sem leigðir eru erlendis. Ef skráður eigandi bifreiðar með viðbótarvernd leigir sér bíl utan Íslands og verður fyrir tjóni, getur hann fengið allt að 146.500 krónur endurgreiddar af útlögðum kostnaði vegna eigináhættu.
Hækkandi kostnaður vegna framrúðutjóna
Kostnaður bifreiðaeigenda vegna framrúðutjóna hefur hækkað jafnt og þétt undanfarin ár. Ástæðurnar eru einkum tvíþættar. Annars vegar hefur aukinn tæknibúnaður og öryggiskerfi í nýrri bílum gert framrúðuskipti flóknari og kostnaðarsamari. Hins vegar hefur hlutfall sjálfsábyrgðar víða hækkað og er nú oft um 25%. Það þýðir að ef skipta þarf um framrúðu sem kostar 200.000 krónur, greiðir eigandi allt að 50.000 krónur úr eigin vasa. Með viðbótarverndinni er hægt að fá allt að 72.500 krónur endurgreiddar vegna eigináhættu í framrúðutjónum.
Tilkynningar í gegnum Vegbót
Af þessu tilefni minnir FÍB einnig á tilkynningarsíðuna Vegbót sem félagið heldur úti. Þar geta ökumenn tilkynnt um framrúðutjón með upplýsingum um staðsetningu þar sem tjón varð. Sama á við varðandi tilkynningar um holur eða önnur frávik á umferðarmannvirkjum. Tilkynningarnar sendast beint til þess veghaldara sem ber ábyrgð á þeim vegi þar sem holan er eða þar sem steinn fór í framrúðu. Veghaldari fær upplýsingarnar og getur brugðist við með úrbótum. Þetta eykur einnig ábyrgð veghaldara ef ekki er brugðist við og frekari tjón verða.
Með FÍB Viðbótarverndinni viljum við auka á fyrirsjáanleika og lágmarka hættuna á óvæntum útgjöld félagsmanna vegna bifreiðatjóna.
Nánari upplýsingar um kosti og kjör má finna á heimasíðu FÍB.







