„Við fögnum því að það sé farin þessi leið“

Lestími: < 1 mín

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, fagnar boðaðri lækkun á virðisaukaskatti á eldsneyti og er bjartsýnn á að verðlækkanir skili sér til neytenda. Framkvæmdastjóri FÍB býst við að lækkun á bensínverði hjálpi til við að draga úr verðbólgu. Lækkun á heimsmarkaðsverði á hráolíu síðustu daga eigi eftir skila sér til neytenda hér heima.

Ríkisstjórnin kynnti á föstudag tímabundnar aðgerðir til að draga úr verðbólgu. Virðisaukaskattur á eldsneyti lækkar úr 24% í 11% og olíufélögin verða skylduð með lögum til að skila verðlækkunum til neytenda.

„Við fögnum því að það sé farin þessi leið,“ segir Runólfur Ólafsson. Við lækkun eldsneytis þá mun það skila um 0,3% lækkun á vísitölunni,” í viðtali við í sjónvarpsfréttum á RÚV.

Allavega áhrif til að slá á þetta

„Það er allavega ljóst að þessar gríðarlegu hækkanir sem hafa verið að eiga sér stað vegna þessa ófremdarástands í Íran er eitthvað sem íslensk stjórnvöld og okkar hagstjórn ræður ekkert við til lengri tíma og hefur engin áhrif á. Þetta eru þó allavega áhrif til að slá á þetta,“ segir Runólfur.

Þrátt fyrir lækkun á heimsmarkaðsverði á hráolíu í liðinni viku hefur verð á bensíni hér heima haldið áfram að hækka. „Við skulum nú gefa markaðnum einhverja daga,“ segir Runólfur. Hann bendir á að hækkanir hafi líka oft verið lengur að skila sér út í verðlagið hér heima.

Umfjöllunin á RÚV og viðtalið við Runólf má nálgast hér.

Deila grein: