Nýjar og spennandi reglur fyrir 2026 tímabilið í Formúlu 1

Lestími: 2 mín

Nýtt tímabil er að hefjast núna um helgina í Formúlu 1 og eru margir eflaust orðnir spenntir. Með nýju tímabili fylgja oft nýjar reglur og breytingar. Í þessari grein koma fram nokkrar spennandi og áhugaverðar breytingar á næsta tímabili. 

Minni bílar

Bílarnir eru orðnir minni en þeir voru á síðasta tímabili. Það eru núna 200mm á milli fram og aftur öxlana, lengdin er 3400mm í stað 3600mm, og bílarnir orðnir liprari en áður. Þeir eru einnig orðnir þrengri, um 100mm voru teknir af breiddinni. Nýju breytingarnar geta haft áhrif á kappaksturinn með því búa til meira rými fyrir bílanna til að berjast og þannig auka spennu á brautinni. 

Léttari bílar

Bílarnir hafa orðið léttari bæði vegna minnkunnar á stærð en einnig vegna fjarlægingar MGU-H (e. Motor Generator Unit – Heat), sem gerði það kleift að hægt var að lækka þyngdarmörkin. Lágmarks þyngdarmörkin voru lækkuð úr 800 kg árið 2025 í 768 kg fyrir nýja tímabilið. Ökumenn hafa nefnt að þeir finna fyrir þyngdar muninum undir stýri og betri aksturseiginleikum.

Nýir aflgjafar

MGU-H einingin er farin og brunahreyfillinn (ICE) skilar minna afli en áður fyrr, eða 400 kW. Hins vegar MGU-K (e. Motor Generator Unit – Kinetic) enn til staðar og er nú öflugri. Raforkugeymslan eykst úr 120 kW í 350 kW sem skilar af sér jafnari skiptingu á milli brunahreyfils og rafmagns.

Nú er leyfilegt að hlaða rafhlöðuna með meiri orku en var áður leyft. Orkujöfnun á sér stað við hemlun, þegar ökumaður er ekki með allan þunga á gjöfinni eða þegar hann stígur alveg af gjöfinni áður en hann hemlar. 

Stilling fyrir framúrakstur

Stilling fyrir framúrakstur (e. Overtake mode) er ný stilling sem mun taka við af DRS (e. Drag Reduction System) og hjálpar ökumanni að við framúrakstur. Hægt er að nota þessa stillingu einu sinni á hverjum hring en verður einungis aðgengilegt ef ökumaður er innan við sekúndu á eftir bílnum á undan sér. Þessi nýja stilling mun líklegast vera mest notuð á beinu köflunum.

Auka kraftur

Þetta er bæði reglubreyting og þróun á því sem áður var. Auka krafturinn (e. Boost) felst í því að ökumaður getur nýtt viðbótarorku, sem þegar hefur verið safnað, hvenær sem hann vill. Þessi auka kraftur kemur frá 350 kW MGU-K aflgjafanum. Ökumenn geta notað auka kraftinn hvenær sem er, t.d. bæði til að taka fram úr eða verjast gegn framúrakstri frá öðrum ökumanni. Hægt er að nota allan kraftinn í einu eða á mismunandi tímum í hverjum hring. 

Deila grein: