Tesla gert að bæta slit í hjólabúnaði

Lestími: 2 mín

Áfrýjunarnefnd bifreiðamála í Danmörku hefur úrskurðað að Tesla skuli greiða fyrir viðgerð á Tesla Model Y eftir að verulegt slag kom í ljós í afturhjólabúnaði bílsins. Málið hófst þegar eigandi bílsins, sem var aðeins eins árs gamall, fór með hann í þjónustuskoðun þar sem gallinn uppgötvaðist. Í málinu var deilt um ábyrgð þar sem Tesla neitaði upphaflega að gera við bílinn í ábyrgð og fullyrti að slagið væri innan þeirra eigin viðmiðunarmarka.

Gæti fallið í skoðun

Félag danskra bifreiðaeigenda (FDM) aðstoðaði eigandann og benti á að bíllinn myndi líklega falla í almennri bifreiðaskoðun vegna slagsins og væri þar með óhæfur til aksturs. Þá eru fjölmörg fordæmi fyrir því eins og FÍB Fréttir skrifuðu um fyrr á þessu ári. Tesla Model Y með falleinkunn í fyrstu aðalskoðun.

Niðurstaða sérfræðinga

Skoðunarmaður á vegum áfrýjunarnefndarinnar staðfesti að slagið væri 1,4 mm. Hann taldi þetta óeðlilegt slag í afturhjólabúnaði á svo nýjum bíl og staðfesti að bíllinn myndi ekki standast aðalskoðun hjá viðurkenndu skoðunarfyrirtæki. Í íslensku skoðunarhandbókinni er leyfilegt þver- og lengdarslag í kúluliðum í afturhjólafestingu 1 mm.

Úrskurðurinn

Nefndin hafnaði rökum Tesla og sagði innri viðmið framleiðanda ómerk ef bíll uppfyllir ekki opinberar umferðaröryggiskröfur og verklagsreglur fyrir skoðunarstofur og endurskoðunarverkstæði. Áfrýjunarnefndin úrskurðaði að Tesla ætti að greiða viðgerðarkostnaðinn, áætlað um 3.346 danskar krónur (um 65.000 íslenskar krónur), og benti á að innri vikmörk Tesla breyti ekki skyldum bílaframleiðandans.

Talsmaður FDM í Danmörku segir þetta mikilvægan sigur fyrir neytendur. Fjölmargir eigendur Tesla Model Y og Model 3 hafa glímt við sambærileg vandamál. Félagið hvetur aðra eigendur Tesla bíla í svipaðri stöðu að standa fast á rétti sínum gagnvart framleiðandanum.

Fordæmi

Þessi danski úrskurður ætti að hafa fordæmisgildi á Íslandi. Falli Tesla bíl í aðalskoðun hér heima vegna slags innan ábyrgðartíma, þá ætti þessi úrskurður að nýtast sem röksemd fyrir því að Tesla lagfæri slagið óháð þeirra eigin viðmiðunarmörkum.


Í myndbandi hér að neðan má sjá hvernig slag hefur myndast í hjólabúnað að aftan.

Deila grein: