62% minni umferð – appelsínugul veðurviðvörun er fallin úr gildi

Lestími: < 1 mín

Þegar heildarfjöldi ökutækja á höfuðborgarsvæðinu á alls 110 talningarstöðum er skoðaðar kemur í ljós að umferðin var  62% minni í dag, samanborið við umferðina í gær. Heildarfjöldi ökutækja kl. 13 í gær var 566.322 en 217.799 ökutæki í dag, 26. mars. Munurinn er heil 348.523 ökutæki miðað við þessa talningarstaði. Appelsínugul veðurviðvörun er fallin úr gildi á höfuðborgarsvæðinu.

Allt gekk vel fyrir sig í óveðrinu á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Aðgerðastjórn almannavarna segir mest um vert að almenningur hafi farið eftir fyrirmælum og haldið sig heima við á meðan lægðin gekk yfir.

Í morgun kom í ljós að það var ekki að ástæðulausu að gefnar voru út viðvaranir vegna veðursins og það er þakkarvert að fólk hafi farið eftir þeim. Appelsínugul viðvörun hefur nú verið felld úr gildi. Aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins og Reykjavíkurborg ítreka þakkir sínar til fólks fyrir að hafa ekki verið á ferðinni í morgun eins og óskað var eftir. Það létti mjög störf allra viðbragðsaðila. 

Víðtæk áhrif  

Veðrið hafði víðtæk áhrif á höfuðborgarsvæðinu. Samgöngur lágu að miklu leyti niðri og vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu var lokað. Strætisvagnar hættu um tíma að ganga. Snjóhreinsun hefur verið í gangi á stofnbrautum í morgun og verið til aðstoðar þar sem ástandið hefur verið hvað verst.

Deila grein: